Þingkosningar í Bandaríkjunum

Krefjast afsagnar lygarans á þingi
Leiðtogar Repúblikanaflokksins í New York-ríki kölluðu í dag eftir því að George Santos, nýkjörinn þingmaður úr ríkinu segi af sér. Það eigi hann að gera vegna umfangsmikilla lyga hans í kosningabaráttunni. Santos segist hins vegar ætla að sitja sem fastast.

Lygarinn á þingi sakaður um að brjóta kosningalög
Hinn umdeildi bandaríski þingmaður, George Santos, stendur frammi fyrir mögulegri rannsókn Alríkis-kjörstjórnar Bandaríkjanna (FEC). Það er eftir að hlutlaus eftirlitssamtök lögðu fram kvörtun um að hann hefði brotið lög varðandi kosningar.

McCarthy kjörinn forseti fulltrúadeildar eftir fimmtán tilraunir
Repúblikaninn Kevin McCarthy hefur verið kjörinn forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings eftir alls fimmtán tilraunir til að ná kjöri. Hópur Repúblikana, yst á hægri væng flokksins, hafði komið í veg fyrir að McCarthy næði kjöri.

McCarthy vantar enn fjögur atkvæði
Repúblikanann Kevin McCarthy vantar enn atkvæði fjögurra þingmanna fulltrúadeildar Bandaríkjaþings til þess að verða forseti þingsins. Í dag fóru tólftu og þrettándu umferðir kosningar í embættið fram.

McCarthy borubrattur eftir viðræður við andstæðinga
Óreiða virðist einkenna störf fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á fyrstu dögum nýs kjörtímabils. Eftir ítrekaðar atkvæðagreiðslur hefur þingmönnum ekki tekist að kjósa þingforseta en til stendur að halda tólftu atkvæðagreiðsluna og mögulega fleiri í dag.

Niðurlæging þingforsetaefnis repúblikana hélt áfram
Pattstaða ríkir enn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings eftir að Kevin McCarthy, leiðtoga repúblikana, mistókst enn og aftur að tryggja sér nógu mörg atkvæði flokkssystkina sinna til þess að ná kjöri sem forseti deildarinnar. Ekkert liggur fyrir um hvernig hægt verður að skera á hnútinn.

Trump kallar eftir stuðningi við McCarthy
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, kallar eftir því að Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fylki liði við bak Kevin McCarthy, leiðtoga þingflokksins. McCarthy vill verða forseti fulltrúadeildarinnar en mistókst það í þremur atkvæðagreiðslum í gær.

Leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni niðurlægður í atkvæðagreiðslum í gær
Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, varð í gær fyrstur manna í hundrað ár til að ná ekki að tryggja sér embætti forseta fulltrúadeildarinnar í fyrstu atkvæðagreiðslu.

Taka aftur upp fjársvikamál gegn lygaþingmanninum
Saksóknarar í Brasilíu ætla að taka aftur upp rannsókn á fjársvikamáli gegn George Santos, verðandi þingmanni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Rannsóknin var sett á ís á sínum tíma þar sem brasilísku lögreglunni tókst ekki að hafa uppi á Santos.

McCarthy í erfiðri stöðu og líkur á óreiðu á þingi
Nýtt kjörtímabil hefst í Bandaríkjunum á morgun og munu Demókratar þá formlega missa meirihluta í fulltrúadeildinni. Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni, hefur unnið hörðum höndum að því að tryggja sér atkvæði 218 þingmanna svo hann geti orðið þingforseti en svo virðist sem hann nái því ekki.

Rannsaka raðlygna verðandi þingmanninn
Alríkis- og sýslusaksóknarar í Bandaríkjunum rannsaka nú fjármál nýkjörins þingmanns Repúblikanaflokksins og ítrekaðar lygar hans um sjálfan sig í kosningabaráttunni. Verðandi þingmaðurinn hefur átt erfitt með að skýra hvaðan fé sem hann notaði til framboðsins kom.

Viðurkennir að hafa logið á ferilskránni en ætlar samt inn á þing
George Santos, sem nýverið var kosinn þingmaður í New York-ríki í Bandaríkjunum fyrir Repúblikana, hefur viðurkennt að hafa logið á ferilskrá sinni. Hann gerir þó lítið úr fölsun sinni, segist einungis hafa gerst sekur um ýkja á ferilskránni og ætlar að taka sæti á þinginu eftir áramót líkt og hann var kosinn til þess að gera.

Ferilskrá verðandi þingmanns talin vera uppspuni
George Santos, sem nýverið var kosinn þingmaður í New York í Bandaríkjunum, virðist hafa falsað stóran hluta ferilskrár sinnar. Santos sem er Repúblikani vann sæti sitt í fulltrúadeildinni í kosningunum í síðasta mánuði, en Repúblikanar náðu mjög naumum meirihluta þar.

Erfið vika í vændum hjá Trump
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir erfiðri viku. Þingnefnd mun mögulega leggja til að hann verði ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra og skattaskýrslur hans verða mögulega opinberaðar.

Rannsaka kosningaframlög FTX-forkólfa
Bandarískir alríkissaksóknarar eru nú sagðir beina sjónum sínum að framlögum stjórnenda rafmyntafyrirtækisins FTX í kosningasjóði stjórnmálamanna. Þeir voru einir stærstu fjárhagslegu bakhjarlar flokkanna tveggja fyrir þingkosningarnar í síðasta mánuði.

Meirihluti Demókrata geirnegldur
Demókratar geirnegldu meirihluta sinn í öldungadeild Bandaríkjaþings í nótt þegar í ljós kom að þeir fóru með sigur af hólmi í aukakosningum sem fram fóru í Georgíu.

Berjast um síðasta sætið í öldungadeildinni mánuði síðar
Íbúar í Georgíu-ríki Bandaríkjanna ganga til kosninga í annað sinn á rúmum mánuði í dag til að ákveða hver hreppir sæti í öldungadeild þingsins. Prestur og fyrrverandi fótboltamaður keppast um sætið en með sigri gætu Repúblikanar jafnað þingmannafjölda Demókrata, þó ólíklegt þyki.

Uppljóstrun Musks reyndist rýr í roðinu
Elon Musk og blaðamaðurinn Matt Taibbi tístu um helgina um gögn frá Twitter sem fjölluðu um þá ákvörðun þáverandi forsvarsmanna fyrirtækisins um að banna frétt um Hunter Biden, son Joe Biden, núverandi forseta Bandaríkjanna.

Mætir mótspyrnu innan eigin flokks
Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikanaflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir óvæntri mótspyrnu innan flokksins í tilraunum hans til að tryggja sér embætti forseta fulltrúadeildarinnar. Þingmenn flokksins hafa sagt að til greina komi að gera samkomulag við Demókrata um að kjósa þingforseta sem falli í kramið hjá þeim.

Pelosi stígur til hliðar eftir tæplega tveggja áratuga forystu
Nancy Pelosi, fráfarandi forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, sækist ekki eftir því að leiða Demókrataflokkinn í deildinni á komandi kjörtímabili. Hún hefur verið í forystu flokksins í neðri deild þingsins í nærri því tuttugu ár.

Repúblikanar taldir öruggir með meirihluta í fulltrúadeildinni
Nú þykir orðið ljóst að Repúblikanaflokkurinn muni fara með völdin í fulltrúadeildinni á Bandaríkjaþingi.

Katie Hobbs lagði Kari Lake í Arizona
Katie Hobbs, frambjóðandi Demókrata í ríkisstjórakosningum í Arizona hefur verið útnefndur sigurvegari í kosningunum sem fram fóru á dögunum og reyndust afar tvísýnar.

Beina spjótum sínum að Trump
Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump.

Kjósendum hugnist ekki frambjóðendur sem afneita kosningaúrslitum
Prófessor í sagnfræði segir að úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum bendi til þess að pólitískur klofningur sé í algleymingi í landinu.

Harris gulltryggir öldungadeildina en fulltrúadeildin enn óljós
Helstu miðlar vestanhafs greindu frá því í nótt að Demókratinn Catherine Cortez Masto hefði sigrað mótframbjóðanda sinn, Repúblikanann Adam Laxalt og tryggt flokknum öldungadeildarþingsætið í Nevada. Demókratar hafa nú tryggt sér 50 sæti á móti 49 sætum Repúblikana og eiga niðurstöður enn eftir að berast frá Georgíu.

Demókratar halda meirihluta í öldungadeildinni
Demókratar hafa tryggt sér fimmtíu sæti í öldungadeild bandaríska þingsins. Flokkurinn vann afar nauman og mikilvægan sigur í Nevada-ríki í nótt.

Mjótt á munum í Nevada en Demókratar tryggja sér Arisóna
Eftir liðna nótt eru Demókratar einu sæti frá því að tryggja sér meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins. Geimfarinn Mark Kelly tryggði sér þingsæti Arisóna.

Demókratar bæta við forskotið í keppni um lykilþingsæti í Arizona
Geimfarinn Mark Kelly er nú með ríflega fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Blake Masters í keppninni um eitt af þremur öldungadeildarþingsætum sem gæti ráðið því hvort demókratar eða repúblikanar fara með völd í deildinni. Enn eru þó of mörg atkvæði ótalin til að hægt sé að lýsa annan þeirra sigurvegara.

Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref
Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera.

Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy
Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans.