Hætta við að hætta við að hætta við Hollendingar munu ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári eftir allt saman. Þjóðin sniðgekk keppnina í fyrra og ætlaði að gera það aftur í ár þar til að talsmenn sjónvarpsstöðvarinnar NPO tilkynntu að þjóðin yrði með. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekkert verður af þátttökunni, Hollendingarnir eru þar með hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt í Eurovision. Tónlist 27.10.2026 10:26
Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Meirihluti stjórnarmanna Ríkisútvarpsins vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Líkt og frægt er orðið tók Ísland ekki þátt í keppninni í ár vegna þátttöku Ísraels í keppninni og þá var heldur engin Söngvakeppni haldin, í fyrsta sinn um árabil. Lífið 30.9.2026 19:15
Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn. Tónlist 17.9.2026 12:31
Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Búlgaría sigraði Eurovision sem fram fór í Vínarborg í Austurríki í kvöld. Ísrael lenti í öðru sæti og Rúmenía í því þriðja. Þetta er í fyrsta sinn sem Búlgaría fer með sigur af hólmi en landið tók ekki þátt síðustu fjögur ár. DARA með lagið Bangaranga fékk alls 516 stig. Lífið 16. maí 2026 23:01