Hitabylgja í Evrópu í júní 2026
Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Dauðsföllum í Frakklandi fjölgaði um tæp 30 prósent síðustu vikuna í júní, þegar fordæmalaus hitabylgja gekk yfir landið. Dauðsföllum fjölgaði um 2.025 milli vikna og um heil 62 prósent í höfuðborginni París. Erlent 3.7.2026 13:01
Allir og amma þeirra á Ítalíu Svakaleg hitabylgja hefur riðið yfir Ítalíu síðastliðnar tvær vikur en það hefur þó ekki stoppað íslenska ferðalanga sem flykkjast til landsins í massavís. Fjöldi Íslendinga hefur verið í sumarfríi á stígvélinu góða síðustu vikurnar, urmull leikara, poppstjörnur og annað gott fólk. Lífið 3.7.2026 12:01
Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Hitamet hafa fallið víða í Evrópu síðustu daga og eru um 1300 manns látnir vegna hennar, samkvæmt framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðastofnunarinnar. Hann segir að evrópsk heimili, vinnustaðir og skólar séu ekki byggðir fyrir slíkan hita sem mælst hefur í álfunni síðan í síðustu viku. Erlent 29.6.2026 06:25
Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins. Erlent 28.6.2026 19:16
Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Hitabylgja geisar enn um stóran hluta Evrópu og víða hefur viðburðum verið aflýst vegna hitans. Í Hollandi hefur einni stærstu raftónlistarhátíð heims verið aflýst á föstudag, 26. júní, en þar í landi var í fyrsta sinn gefin út rauð veðurviðvörun vegna hita nú á dögunum. Erlent 28.6.2026 10:05
41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Hitinn fór upp í 41,5 gráður í Þýskalandi í dag og er það hæsti hiti sem mælst hefur í landinu frá upphafi mælinga. Hitamet var sömuleiðis sett í Danmörku og Tékklandi í dag en hitabylgja gengur nú yfir Evrópu. Erlent 27.6.2026 18:40
Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Nýtt hitamet hefur verið slegið í Ødum á Austur-Jótlandi þar sem hiti mældist 37 gráður í dag. Elinóra Guðmundsdóttir býr í Kaupmannahöfn þar sem hiti hefur einnig verið verulegur. Hún segir nánast óbærilegt úti og hún hafi þurft að halda börnunum inni. Innlent 27.6.2026 13:44
Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn. Erlent 27.6.2026 10:50
Áfengisbann í París um helgina Áfengisbann verður sett í París um helgina í viðleitni til að draga úr áhrifum hitabylgjunnar sem nú geisar í Evrópu. Erlent 26.6.2026 08:40
Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum. Erlent 25.6.2026 17:35
Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segist aldrei hafa upplifað annan eins hita í borginni. Banvæn hitabylgja ríður yfir Evrópu og eru líkur á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. Innlent 24.6.2026 20:01
Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. Erlent 24.6.2026 11:01
Eins og að vera í bakaraofni í hitabylgjunni: „Raunveruleg hætta á að fólk geti fengið hitaslag“ Nýliðin nótt var sú heitasta frá upphafi mælinga í Frakklandi og Lundúnum er lýst sem bakaraofni. Hitabylgjan í Evrópu hefur reynst banvæn en veðurfræðingur sem talar frá Róm segir að miðja hitahvelfingarinnar sé að færast norður yfir Bretlandseyjar. Innlent 23.6.2026 12:44
Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veðurstofan í Bretlandi telur líklegt að í dag verði heitasti dagur júnímánaðar frá upphafi mælinga þar í landi. Spáð er því að hitinn fari yfir 35 stig. Erlent 23.6.2026 07:55
Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Mikil hitabylgja geisar í Evrópu og eru rauðar veðurviðvaranir í gildi á stórum svæðum vegna hita. Áhrif hitabylgjunnar hafa verið gríðarlega mikil í Frakklandi. Í suðausturhluta landsins fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið í dag. Hitastig á svæðinu mældist 39 gráður á hádegi. Erlent 22.6.2026 21:36
Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Hiti náði fjörutíu gráðum í borginni Bordeaux í dag. Rauðar veðurviðvaranir ná yfir um það bil hálft Frakkland á morgun auk þess sem appelsínugular viðvaranir gilda í stórum hluta landsins. Mikil hitabylgja gengur nú yfir Evrópu meðal annars vegna streymis heits lofts norður á bóginn frá Sahara-eyðimörkinni. Erlent 21.6.2026 21:02
Spá allt að fjörutíu stiga hita Búist er við að hitabylgja muni ganga yfir sunnanverða Evrópu næstu daga. Helsta orsökin er heitt loft sem berst norður til Evrópu frá Sahara. Erlent 17.6.2026 20:22
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent