Fjárlagafrumvarp 2027

Fréttamynd

Fjórar af hverjum fimm í­búðum seljast undir aug­lýstu verði: „Við höfum miklar á­hyggjur“

Fjórar af hverjum fimm íbúðum seldust undir auglýstu verði í júlí. Leyfum fyrir ný íbúðarhús hefur fækkað um helming frá árunum 2021 til 2023, atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgað um 27 prósent og vanskil greinarinnar aukist hratt. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir boðaða skattahækkun geta leitt til þess að enn minna verði byggt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Halla­laus fjár­lög – en á kostnað hverra?

Þráhyggjustef ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokk fólksins um hallalaus fjárlög raungerðist í byrjun vikunnar. Þá héldu ríkisstjórnarflokkarnir fádæma kynningu á fjárlagafrumvarpi sem lagt verður á haustþingi.

Skoðun
Fréttamynd

Hver borgar skattinn að lokum?

Hallalaus fjárlög eru mikilvægt markmið. Skattkerfið þarf hins vegar að gera meira en að afla tekna. Það þarf einnig að vera fyrirsjáanlegt, sanngjarnt og samkeppnishæft. Breytingar á því þurfa að taka mið af raunverulegum áhrifum á fyrirtæki og heimili. Óskýrt er hvers vegna ekki eru farnar almennari leiðir til að hækka skatta ef það er markmiðið.

Umræðan
Fréttamynd

Hvað borga ferða­menn fyrir nýtingu náttúru og inn­viða?

Fjárlög fyrir árið 2027 voru kynnt á mánudagsmorgunn, við gleðileik ráðherra en litla alþýðuhylli. Áform um gríðarlegar skattahækkanir sem munu snerta alla anga ferðaþjónustu ollu þar gríðarlegum vonbrigðum, enda hefur atvinnugreinin viljað vinna með stjórnvöldum að öðrum og jákvæðari leiðum til að auka skatttekjur samfélagsins af ferðaþjónustu til framtíðar.

Skoðun
Fréttamynd

„Sleggja beint í höfuðið á al­menningi og fyrir­tækjum“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, kannast ekki við að hafa átt í virku samtali við stjórnvöld um forsendubrest kjarasamninga. Hann gefur lítið fyrir fjárlagafrumvarp næsta árs sem sé „sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“.

Innlent
Fréttamynd

Ferða­þjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjár­laga

Frumvarp ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um fjárlög fyrir árið 2027 liggur nú fyrir. Það hefur vart farið framhjá neinum. Ríkisstjórnin hreykir sig af því við hvert tækifæri sem gefst að hallarekstur ríkissjóðs verði stöðvaður á næsta ári.

Skoðun
Fréttamynd

Stokkið á (barna)vagninn

Það var viðbúið að vinsælt þema í skrifum þessa dagana yrði gagnrýni á fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Það er enda óhætt að segja að stórtæk skatta- og gjaldahækkunaráform hafi ekki vakið mikla lukku hjá skattpíndum almenningi og fyrirtækjum í landinu. Ég læt mitt ekki eftir liggja í þessari óánægjubylgju.

Skoðun
Fréttamynd

Biður Loga af­sökunar „á dónaskapnum“

Gunnar Helgason rithöfundur biður Loga Einarsson menningarmálaráðherra afsökunar eftir að hafa farið ófögrum orðum um hann. Ástæðan var niðurskurður Bókasafnssjóðsins um tugi milljóna.

Innlent
Fréttamynd

„Það kostar peninga að afla peninga“

Mennta- og barnamálaráðherra segir áherslumál Flokks fólksins og kostnaður þeirra fara vel saman með áætlunum ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjármagn. Fátækt kosti ríkið meiri peninga en ef ekkert er að gert. Forsætisráðherra segir að sérstaklega hafi verið staðið vörð um almenning þegar litið var til fjármögnunar fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta ár.

Innlent
Fréttamynd

Loksins úr mínus í plús

Eftir átta ára samfelldan hallarekstur og 866 milljarða króna uppsafnaðan halla verður ríkissjóður rekinn með afgangi á næsta ári. Þetta eru mikilvæg tímamót. Halli ríkissjóðs jókst mikið í heimsfaraldrinum en hvarf ekki þegar faraldurinn var genginn yfir. Tímabundin útgjöld urðu varanleg og kostnaðurinn hélt áfram að vaxa hraðar en tekjurnar. Sú staða var ósjálfbær og leiddi til þenslu.

Skoðun
Fréttamynd

Rukka meira fyrir aksturinn og sér­stak­lega fyrir veginn

Ríkisstjórnin boðar tæplega 16 prósenta hækkun kílómetragjalds í fjárlagafrumvarpi ársins 2027, samhliða áformum um að fjármagna fleiri samgöngumannvirki með veggjöldum. Ökumenn greiða bæði gjöldin á gjaldskyldum leiðum. Stjórnvöld telja það heimilt þar sem kílómetragjaldið sé skattur en ekki sérstök greiðsla fyrir veginn sem ekið sé um.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin eigi náttúrupassa skilið

Auðveldara er að innleiða náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands í dag en það var á sínum tíma þegar umræða um náttúrupassa fór mikinn, að mati forsætisráðherra. Hún segir breyttan heim auðvelda innleiðingu gjaldsins og að vont hafi verið að ekki hafi tekist að innleiða náttúrupassa á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

„Við getum verið að fara inn í al­veg ís­kaldan vetur“

Formenn stjórnarandstöðuflokka á þingi segja þingmálaskrá rýra og að ríkisstjórnin sé algjörlega að missa tökin á hagstjórn í landinu. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir ískaldan vetur fram undan á þingi. Rætt var við formenn stjórnarandstöðu eftir þingsetningu á þingi fyrr í dag.

Innlent
Fréttamynd

„Við skulum bara spyrja að leiks­lokum“

Barnabókahöfundur segir nóg komið eftir að Bókasafnssjóður var skorinn niður um tugi milljóna króna. Menningarráðherra segir aukið fjármagn til bókmennta væntanlegt og því skuli spyrja að leikslokum.

Innlent
Fréttamynd

„Sann­kallað efna­hags­legt og pólitískt sjálfs­mark“ hjá ríkis­stjórninni

Það „vekur furðu“ að ríkisstjórnin sé að endurtaka sömu mistökin frá því um áramótin með hækkunum á krónutölugjöldum sem ýtir undir verðbólguvæntingar og verðbólgu, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði, og kallar aðgerðirnar „sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá stjórnvöldum. Aðhaldið sem er boðað í fjárlögunum er töluvert í sögulegu samhengi, með nokkuð minni útgjaldavexti milli ára en hefur sést að jafnaði síðasta áratuginn, en á móti benda greinendur á að viðsnúningurinn sem á að nást í afkomunni sé að litlum hluta vegna niðurskurðar eða aðhalds í rekstri.

Innherji
Fréttamynd

„Við erum að búa til sam­fé­lag hálf­vita“

Gunnar Helgason rithöfundur segir að það sé verið að búa til „samfélag hálfvita“ þegar framlög til Bókasafnssjóðs séu skorin niður. Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi verður Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Hann segir þetta koma niður á barnabókahöfundum sérstaklega en þeir standi aðeins jafnfætis öðrum höfundum þegar kemur að greiðslum úr sjóðnum.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjart­sýni“

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til.

Innlent
Fréttamynd

Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra

Frábært hjá ríkinu að ætla að skila hallalausum fjárlögum, það er löngu tímabært og núllið á spjaldinu var flott sjónvarpsefni. En til að núllið gangi upp, á nú að sækja 9 milljarða til viðbótar í ferðaþjónustuna, og þegar hækkun kílómetragjalds er talin með er reikningurinn nær 10 til 11 milljörðum. Um helmingur allrar nýrrar tekjuöflunar frumvarpsins er þannig sóttur í eina atvinnugrein.

Skoðun
Fréttamynd

Klórar sér í kollinum

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond.

Innlent
Fréttamynd

„Hvar ætla þau þá að spara?“

Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­festar veðja á meiri verð­bólgu en áður eftir kynningu á fjár­laga­frum­varpi

Þrátt fyrir áform um hallalausfjárlög á komandi ári, sem nemur 0,1 prósenti af landsframleiðslu, hafa skuldabréfafjárfestar tekið fremur illa í fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar en verðbólguvæntingar á markaði hafa hækkað umtalsvert í morgun. Fjármálaráðherra boðar að aðhaldsstig ríkisfjármálanna, sem er áætlað lítillega neikvætt á þessu ári, verði „allnokkuð“ en samhliða því er útlit fyrir að hreinn lánsfjárjöfnuður batni umtalsvert á árinu 2027.

Innherji