Ævintýraleg endurkoma Clippers gegn meisturunum | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. apríl 2019 07:30 Það snerist allt á hvolf hjá meisturunum. vísir/getty
Los Angeles Clippers gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra stiga sigur á Golden State Warriors, 135-131, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jafnaði einvígið í 1-1. Sigurinn var hreint ótrúlegur því gestirnir frá Los Angeles voru mest 31 stigi undir en ekkert lið hefur komið til baka úr svona djúpri holu í úrslitakeppninni síðan að Lakers-liðið 1989 gerði það á móti Seattle í undanúrslitunum. Það var þá 29 stigum undir. Lou Williams var magnaður fyrir gestina en hann kom af bekknum og skoraði 36 stig á 33 mínútum auk þess sem að hann gaf ellefu stoðsendingar en Monztrezl Harrell kom einnig sterkur af bekknum og skoraði 25 stig. Steph Curry var stigahæstur meistaranna með 29 stig en Kevin Durant skoraði 21 stig og Klay Thompson 17. Næsti leikur fer fram í LA. Ben Simmons var svo allt í öllu fyrir Philadelphia 76ers sem jafnaði metin við Brooklyn Nets með sigri, 145-123, í öðrum leik liðanna en 76ers tapaði fyrsta leiknum á heimavelli. Simmons hlóð í þrennu í úrslitakeppninni í annað sinn á ferlinum en hann skoraði 18 stig, gaf tólf stoðsendingar og tók tíu fráköst eftir að spila hörmulega í fyrsta leiknum þar sem að baulað var á hann úr stúkunni.
NBA Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira