
Viðskipti erlent

ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple
Tæknirisinn Apple hefur kynnt til leiks nýja gervigreindartækni sem verður aðgengileg í tækjum framleiðandans, að nafni Apple Intelligence. Tæknin felur meðal annars í sér talsverða yfirhalningu á talgervlinum Siri og greiðan aðgang notenda að gervigreindartækninni ChatGPT.

Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019
Seðlabankinn í Evrópu lækkaði í dag stýrivexti bankans í fyrsta sinn síðan 2019. Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að ástæða lækkunar sé að verð hækki eins hratt og að þau séu á góðri leið að ná verðbólgumarkmiðum sínum sem eru tvö prósent. Bankinn lækkaði stýrivextina um 0,25 prósentustig í 3,75 prósent úr fjögur prósent en þeir höfðu verið fastir í fjögur prósent frá september 2023.

Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds
Írska skyndibitakeðjan Supermac hafði betur gegn skyndibitarisanum McDonalds í dómsmáli sem sneri að notkun vörkumerkisins Big Mac. Samkvæmt dóminum má McDonalds ekki nota vörumerkið í tengslum við kjúklingaborgara lengur.

Bein útsending: Fjórða flugferð Starship
Starfsmenn SpaceX stefna að þriðja tilraunaskoti Starship geimfarsins í dag. Fyrstu tvær tilraunirnar með þetta risastóra geimfar og eldflaug enduðu með stórum sprengingum. Í þriðju tilraun heppnaðist geimskotið vel, geimfarið Starship fór út í geim og eldflaugin sneri við til jarðar. Áhugevert verður að sjá hvernig fer um geimferð þessa.

Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar
Samfélagsmiðillinn Instagram prufukeyrir nú nýtt viðmót á miðlinum sem neyðir notendur til að horfa á auglýsingar til að halda áfram að nota forritið. Áður fyrr gátu notendur skrunað fram hjá auglýsingum sem birtust þeim en það gæti heyrt sögunni til með nýrri uppfærslu.

Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn
Tilgátu um að Ruja Ignatova, búlgarskur rafmyntarsvikahrappur, hafi verið myrt af búlgörsku mafíunni og líki hennar varpað í Jónahaf er fleygt fram í nýju hlaðvarpi breska ríkisútvarpsins BBC. Ignatova var vinkona forsetaframbjóðandans Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur.

Vilja rannsaka meint samráð með OPEC
Chuck Schumer og 22 aðrir öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins, hafa kallað eftir því að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna beiti öllum ráðum til að koma í veg fyrir verðsamráð í olíuiðnaði Bandaríkjanna. Þingmennirnir vilja að meint samráð verði rannsakað og forsvarsmenn fyrirtækja ákærðir, þyki tilefni til.

Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn
Flugvallayfirvöld á Grænlandi hafa tilkynnt um seinkun á opnun nýs alþjóðaflugvallar við bæinn Ilulissat við Diskó-flóa. Ný tímaáætlun gerir ráð fyrir að hægt verði að taka völlinn í notkun á fjórða ársfjórðungi 2026, eftir tvö og hálft ár.

Dagar Workplace eru taldir
Meta, móðurfélag Facebook og fjölda annarra samfélagsmiðla, hefur tilkynnt að Workplace verði lokað. Félagið ætli að einbeita sér að þróun gervigreindar og svokallaðs Metaverse í staðinn.

Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur rofið ákvæði í risasátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og gæti því átt yfir höfði sér refsimál.

Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad
Apple hefur beðist afsökunar vegna auglýsingar sem hefur vakið mikla reiði. Um er að ræða auglýsingu fyrir nýjan iPad en hún sýnir pressu kremja ýmsa hluti á borð við bækur, hljóðfæri og aðrar táknmyndir listarinnar.

Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta
Bandarískir saksóknarar rannsaka nú hvort að rafbílaframleiðandinn Tesla kunni að hafa gerst sekur um svik með því að blekkja bæði neytendur og fjárfesta um sjálfstýribúnað bílanna. Fyrirtækið og eigandi þess hafa haldið því fram að bílarnir geti ekið sér sjálfir.

Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar
Lyfjafyrirtækið AstraZeneca hefur ákveðið að innkalla bóluefni sitt gegn Covid-19 vegna dvínandi eftirspurnar á heimsvísu. Fyrirtækið var áður hætt að framleiða og dreifa bóluefninu sem var eitt það fyrsta sem var þróað gegn veirunni skæðu.

Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina
Tekjur Apple drógust saman í fimmta sinn á síðustu sex ársfjórðungum. Í heildina voru tekjurnar 90,8 milljarðar dala á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem er fjórum prósentum minna en þær voru á sama tíma í fyrra.

Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti
Changpeng Zhao, stofnandi rafmyndakauphallarinnar Binance, hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti. Hann játaði sök en farið var fram á tveggja og hálfs árs fangelsisrefsingu.

Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja
Gangi lögsóknir þeirra í Bandaríkjunum ekki eftir vilja forsvarsmenn kínverska fyrirtækisins ByteDance, sem á samfélagsmiðlafyrirtækið TikTok, frekar loka miðlinum vinsæla en að selja hann. Það er vegna þess að kóðinn á bakvið samfélagsmiðillinn þykir of mikilvægur rekstri ByteDance og þeir vilja ekki að hann endi í annarra höndum.

Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi
Bandarískir saksóknarar krefjast tveggja og hálfs árs fangelsisdóms yfir stofnanda stærstu rafmyntakauphallar heims. Hann játaði sig sekan um peningaþvætti.

Mikill samdráttur á hagnaði Tesla
Hagnaður rafmagnsbílafyrirtækisins Tesla dróst verulega saman á fyrsta fjórðungi þessa árs, samanborið við sama tímabil í fyrra. Tekjur drógust saman um níu prósent og voru 21,3 milljarður dala en hagnaðurinn dróst saman um 55 prósent og var 1,1 milljarður dala.

Ný kynslóð vélmenna vekur óhug
Forsvarsmenn fyrirtækisins Boston Dynamics, sem hefur lengi gert garðinn frægan með þróun vélmenna, kynntu á dögunum nýja kynslóð Atlas vélmenna. Atlas vélmennin hafa í nærri því áratug vakið mikla athygli fyrir töluverða hreyfigetu.

Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól
Evrópskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að rangt hafi verið að beita tvo rússneska ólígarka refsiaðgerðum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu í dag. Sannanir fyrir því að þeir hafi stutt stríðsreksturinn skorti.

Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar
Verslunarrisinn Amazon hefur ákveðið að hætta notkun tæknilausnar í verslunum sínum, sem gerði viðskiptavinum kleift að taka hluti úr hillunum og einfaldlega labba út. Lausnin er sögð byggð á vinnu um eitt þúsund indverskra láglaunaverkamanna í stað gervigreindar.

Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda
Innan við sextíu framleiðendur jarðefnaeldsneytis og steinsteypu eru sagðir bera ábyrgð á meginþorra losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum frá 2016. Ríkisrekin jarðefnaeldsneytisfyrirtæki eru þau umsvifamestu samkvæmt nýrri greiningu.

Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum
Viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir hafa gert Rússum erfitt um vik með viðhald í olíuvinnslustöðvum og viðgerðir eftir drónaárásir Úkraínumanna. Skortur er á varahlutum og fyrirtæki sem geta framleitt og selt varahluti eru ekki rússnesk.

Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes
Tónlistarkonan Taylor Swift er meðal 265 nýliða á lista Forbes yfir milljarðamæringa heimsins í dollurum talið. Alls er nú 2.781 einstaklingur í heimunum sem á eignir metnar á meira en milljarð Bandaríkjadala.

Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards
Michele Roosevelt Edwards sendi páskakveðju frá Wow Air til fylgjenda sinna á LinkedIn í ár eins og hún hefur gert síðustu fjögur ár. Hún endurnýtir eldgamlar myndir og auglýsingar með kveðjunum. Þar að auki virðist hún hafa víkkað starfsemina út í veðreiðar með Wow Equine Services.

Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir
Ráðamenn í Rússlandi eru sagðir hafa flutt inn eldsneyti frá Belarús í þessum mánuði, vegna samdráttar í framleiðslu. Úkraínumenn hafa gert drónaárásir á þó nokkrar olíuvinnslustöðvar í Rússlandi á undanförnum vikum en útflutningur á eldsneyti var bannaður í upphafi mánaðarins.

Trump græddi milljarða dala í dag
Auður Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, jókst um allt að tvo milljarða dala í dag. Það er í kjölfar þess að fyrirtæki hans, Trump Media & Technology Group, var skráð á markað og hefur virði þess aukist verulega í dag. Fyrirtækið heldur utan um rekstur samfélagsmiðilsins Truth Social.

Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok
Forstjóri Boeing, Dave Calhoun, mun láta af störfum fyrir árslok. Auk hans lætur af störfum forstjóri áætlunarflugvéladeildar félagsins, Stan Deal. Stephanie Pope tekur við af honum. Steve Mollenkopf hefur verið skipaður formaður stjórnar félagsins. Calhoun tilkynnti um þetta í dag í bréfi til starfsmanna.

Bandaríkin höfða mál gegn Apple vegna einokunar
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur höfðað mál gegn Apple. Tæknirisinn er sakaður um að beita einokunarstöðu sinni á markaði snjallsíma til að koma í veg fyrir samkeppni. Þá hafi staða fyrirtækisins verði notuð til að halda aftur af samkeppni á hugbúnaðarmarkaði og draga úr notagildi annarra síma í samkeppni við iPhone.

Færeyska 757-þotan fær aðra ferð á Vogaflugvöll
Boeing 757-flutningaþota færeyska félagsins FarCargo hefur fengið undanþágu frá dönskum samgönguyfirvöldum til að lenda í Færeyjum í dag. Áform um reglulega fiskflutninga eru í uppnámi þar sem reglugerð fyrir Vogaflugvöll, eina flugvöll Færeyinga, takmarkar vænghaf þeirra flugvéla sem mega nota völlinn við allt að 36 metra en 757-þotan er með 41 metra breitt vænghaf.