Einn stofnenda ASOS fannst látinn Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2026 13:39 Quentin Griffiths stofnaði Asos í London árið 2000 með þeim Nick Robertson, Andrew Regan og Deborah Thorpe. Getty Quentin Griffiths, einn stofnandi breska netverslunarrisans ASOS, er látinn, 58 ára að aldri. Hann fannst látinn eftir að hafa fallið af svölum lúxushótels í Taílandi fyrr í mánuðinum. Breskir fjölmiðlar greina frá andláti Griffiths í dag. Hann var í hópi stofnenda tískunetverslunarinnar ASOS árið 2000 og hélt áfram að vera stór hluthafi í félaginu eftir að hann hætti þar störfum fimm árum eftir stofnun. Í frétt BBC segir að lögregla í Pattaya í Taílandi hafi komið að Griffiths látnum 9. febrúar síðastliðinn. Hann hafi verið einn í herberginu á sautjándu hæð sem hafi verið læst innan frá. Engin merki hafi verið um innbrot og ekkert hafi bent til saknæms athæfis. Griffiths hafði búið á hótelinu um nokkurt skeið. Lögregla í Taílandi segir í samtali við BBC að Griffiths hafi verið með tvö dómsmál hangandi yfir sér sem kunni að hafa valdið honum vanlíðan. Hann hafði nýverið skilið við seinni eiginkonu sína, taílenskan ríkisborgara, en þau hafi einnig átt í lagadeilum vegna fyrirtækis sem þau hafi rekið saman. Griffiths stofnaði Asos í London með þeim Nick Robertson, Andrew Regan og Deborah Thorpe. Nafnið ASOS stóð upprunalega fyrir „As Seen On Screen“ og seldi tískufatnað sem svipaði til fatnaðar sem leikarar höfðu klæðst í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Fyrirtækið átti eftir að vaxa mikið og verða að einum af fataverslunarrisum heims. Félagið var um tíma metið á sex milljarða breskra punda. Stærsti hluthafi ASOS er nú danski milljarðamæringurinn Anders Holch Povlsen sem á einnig verslunarrisann Bestseller og svo Mike Ashley, eiganda Frasers Group. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is. Andlát Bretland Taíland Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Breskir fjölmiðlar greina frá andláti Griffiths í dag. Hann var í hópi stofnenda tískunetverslunarinnar ASOS árið 2000 og hélt áfram að vera stór hluthafi í félaginu eftir að hann hætti þar störfum fimm árum eftir stofnun. Í frétt BBC segir að lögregla í Pattaya í Taílandi hafi komið að Griffiths látnum 9. febrúar síðastliðinn. Hann hafi verið einn í herberginu á sautjándu hæð sem hafi verið læst innan frá. Engin merki hafi verið um innbrot og ekkert hafi bent til saknæms athæfis. Griffiths hafði búið á hótelinu um nokkurt skeið. Lögregla í Taílandi segir í samtali við BBC að Griffiths hafi verið með tvö dómsmál hangandi yfir sér sem kunni að hafa valdið honum vanlíðan. Hann hafði nýverið skilið við seinni eiginkonu sína, taílenskan ríkisborgara, en þau hafi einnig átt í lagadeilum vegna fyrirtækis sem þau hafi rekið saman. Griffiths stofnaði Asos í London með þeim Nick Robertson, Andrew Regan og Deborah Thorpe. Nafnið ASOS stóð upprunalega fyrir „As Seen On Screen“ og seldi tískufatnað sem svipaði til fatnaðar sem leikarar höfðu klæðst í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Fyrirtækið átti eftir að vaxa mikið og verða að einum af fataverslunarrisum heims. Félagið var um tíma metið á sex milljarða breskra punda. Stærsti hluthafi ASOS er nú danski milljarðamæringurinn Anders Holch Povlsen sem á einnig verslunarrisann Bestseller og svo Mike Ashley, eiganda Frasers Group. Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Píeta samtökin. Síminn hjá Pieta-samtökunum er jafnframt opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan pieta.is.
Andlát Bretland Taíland Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent