Enski boltinn

Man. City skrefi nær Wembley eftir magnaðan fyrri hálfleik á Old Trafford
Manchester City hafði betur gegn grönnunum í United í kvöld.

Sportpakkinn: Guardiola ánægður með að Ole Gunnar vilji brosa svona mikið
Manchester liðin spila í kvöld fyrri undanúrslitaleik sinn í enska deildabikarnum en Pep Guardiola var spakur á blaðamannafundi fyrir leikinn. Guðjón Guðmundsson skoðaði leik kvöldsins og það sem Spánverjinn sagði um kollega sinn í United á fundinum.

Reka fólk út af Old Trafford í kvöld ef það styður Man. City á röngum stöðum
Það á ekki að taka neina áhættu með öryggi áhorfenda í kvöld þegar Manchester liðin mætast í fyrri leik sínum í undanúrslitaleik enska deildabikarsins.

Arteta öskraði á leikmenn Arsenal í hálfleiknum
Mikel Arteta tókst að vekja sína menn í hálfleik í bikarsigrinum á Leeds United í gærkvöldi.

Liverpool mennirnir Salah og Mané keppa um verðlaun í kvöld
Í kvöld kemur í ljós hver verður kosinn besti knattspyrnumaður Afríku en þrír leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni keppa um þann titil að þessu sinni.

Halda því fram að Ancelotti sé tilbúinn að hlusta á tilboð í Gylfa
Framtíð Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton er til umræðu í enskum fjölmiðlum eftir tvo dapra leiki í röð hjá íslenska landsliðsmanninum og svo gæti verið að hann eigi ekki framtíð hjá félaginu.

Pep Guardiola lofar því að taka aldrei við liði Manchester United
Pep Guardiola segir að hann muni aldrei setjast í stjórastólinn á Old Trafford ekki frekar að hann muni aldrei taka við liði Real Madrid.

Í beinni í dag: Baráttan um Manchester
Ein útsending á Sportinu í kvöld og hún er ekki af verri endanum.

Manchester United á tvenn af þrennum verstu leikmannakaupum áratugarins
Nú þegar nýr áratugur gengur í garð eru menn duglegir að gera upp síðustu tíu ár. Þar á meðal hafa menn komist að því hver séu verstu leikmannakaup ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta frá 2010 til 2019.

Nelson skaut Skyttunum áfram
Arsenal er komið í 32-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur á toppliði ensku B-deildarinnar, hinu forna stórveldi Leeds United.

Stórliðin fá flest þægileg verkefni í fjórðu umferð bikarsins
Dregið var í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í dag en nokkrir áhugaverðir leikir verða í 32-liða úrslitunum.

Tvö ár í dag síðan að Liverpool breytti örlögum félagsins með því að selja sinn besta mann
Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og ríkjandi Heims- og Evrópumeistari félagsliða. Kannski var það einn dagur í janúarmánuði árið 2018 sem lagði grunninn að þessum titlum liðsins.

Liverpool fær til sín framherja sem kom upp í gegnum akademíu Manchester City
Liverpool hefur keypt framherjann Joe Hardy frá Bentford en það eru sérstaklega tengsl stráksins við keppinautana í Manchester City sem vekja athygli.

Lallana fær hærri laun en Sadio Mané
Liverpool greiðir leikmönnum sínum 110 millónir punda í laun á hverju ári eða 17,7 milljarða íslenskra króna.

Segja að allt byrjunarlið Liverpool í gær hafi kostað minna en Gylfi
Það er óhætt að segja að stuðningsmenn Everton hafi átt erfitt með að sætta sig við tap á móti varaliði Liverpool í enska bikarnum í gær en fáir fengu að finna fyrir því meira en íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson.

Guðsonur Guðna Bergs lék með Liverpool í sigrinum á Everton
Nathaniel Phillips lék allan leikinn í vörn Liverpool gegn Everton. Hann hefur skemmtilega tengingu við Ísland.

Hetja Liverpool í gær er alvöru Scouser og markið hans minnir marga á byrjun Rooney
Hver er þessi Curtis Jones sem tryggði Liverpool 1-0 sigur á Everton í enska bikarnum í gær?

„Unun að fylgjast með Rooney“
Wayne Rooney er mættur aftur í enska boltann og byrjar vel.

Zabaleta á skotskónum og draumabyrjun Moyes heldur áfram
David Moyes byrjar vel sem stjóri West Ham en hann hefur unnið fyrstu tvo leiki sína sem stjóri liðsins eftir að hann tók við af Manuel Pellegrini í síðustu viku.

Hetjan í Bítlaborgarslagnum: Þreytandi að sitja á bekknum
Curtis Jones var hetjan í baráttunni um Bítlaborgina í enska bikarnum í dag.

Varalið Liverpool fleygði nágrönnunum úr bikarnum
Jurgen Klopp komst upp með að stilla upp algjöru varaliði í borgarslagnum í Liverpool.

Auðvelt hjá Chelsea en Palace úr leik | Öll úrslit dagsins
Chelsea komst nokkuð þægilega í fjórðu umferð enska bikarsins er liðið vann 2-0 sigur á B-deildarliðinu Nottingham Forest á heimavelli sínum í Lundúnum í dag.

Tottenham þarf að mæta Boro á ný
Middlesbrough og Tottenham gerðu 1-1 jafntefli í dag.

Fyrsta skipti í fimm ár sem Man. United á ekki skot á markið
Manchester United átti ekki skot á mark Wolves í gær er liðin gerðu markalaust jafntefli í þriðju umferð enska bikarsins.

Mourinho segir að það eigi að breyta nafninu á VAR í VR
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, virðist ekki vera ýkja sáttur við notkun VAR á Englandi og vill sjá breytingu á nafninu.

Sagðist geta skorað 40 mörk á tímabili gegn John Stones sem vildi ekki tala við hann
Smálið Port Vale stóð í Manchester City í enska bikarnum í gær.

Enskir miðlar segja United vera bjóða 45 milljónir punda og Jesse Lingard í Maddison
Enski miðjumaðurinn James Maddison er ofarlega á óskalist Manchester United.

Útilokar ekki að Jimenez fari í janúar
Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, gaf ekki skýr svör vegna orðróma um möguleg félagaskipti Raul Jimenez til Manchester United.

Í beinni í dag: Barist um Bítlaborgina
14 íþróttaviðburðir í þráðbeinni útsendingu á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

City ætlar ekki að bjóða í Soyuncu
Tyrkinn stóri og stæðilegi ekki á leið til Englandsmeistaranna í janúar.