Formúla 1

Heidfeld stóð ógn af eldinum

Nick Heidfeld var ekki alveg sama þegar kviknaði í bíl hans í kappakstrinum í Ungverjalandi á sunnudaginn. Stóð bíllinn í ljósum logum dágóða stund og lítilsháttar sprenging varð í bílnum þegar starfsmaður með slökkvitæki var að vinna í því að slökkva eldinn. Gekk hann haltur frá þeirri viðureign, en það náðist að slökkva í bílnum á endanum

Formúla 1

Horner: Ekki stórslys að lenda í öðru sæti

Sebastian Vettel jók forskot sitt í stigamóti ökumanna í Formúlu 1 mótinu í Ungverjalandi á sunndaginn, þó hann landaði ekki sigri. Hann er með 85 stiga forskot á Mark Webber, en fjórir ökumenn eru í þéttum hnapp fyrir aftan Vettel.

Formúla 1

Button: Áttum sigurinn skilinn

Jenson Button fagnaði tímamótum í dag í Ungverjalandi þegar hann ók í sínu 200 Formúlu 1 móti og vann sinn ellefta sigur. Button hóf ferlinn með Williams árið 2000, en fagnaði sigri með McLaren í dag.

Formúla 1

Button vann í Ungverjalandi - Vettel jók forskotið

Bretinn Jenson Button á McLaren-bíl vann ungverska kappaksturinn í formúlu eitt sem fram fór á Hungaroring-brautinni í dag. Þjóðverjinn Sebastian Vettel, sem er langefstur í baráttunni um heimsbikarinn, varð annar og jók því forskot sitt á Mark Webber sem endaði í 5. sæti í dag.

Formúla 1

Hamilton og Button á McLaren stefna á sigur

Lewis Hamilton er annar á ráslínu í ungverska Formúlu 1 kappakstrinum í dag og Jenson Button þriðji, en báðir aka á McLaren. Þeir eru staðráðnir í að skáka Sebastian Vettel á Red Bull sem er fremstur á ráslinu, en mótið Ungverjalandi verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.40 í dag.

Formúla 1

Vettel fullur sjálfstrausts á ný

Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu er fremstur á ráslínu fyrir ungverska kappaksturinn á sunnudag, eftir góða frammistöðu í tímatökunni í dag. Hann var á undan Lewis Hamilton og Jenson Button á McLaren.

Formúla 1

Vettel sló Hamilton við í tímatökunni

Sebastian Vettel náði besta tíma í tímatökum fyrir ungverska Formúlu 1 kappaksturinn sem fer fram á morgun. Hann var 0.162 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren í tímatökunni á Hungaroring brautinni, en Jenson Button var þriðji fljótastur.

Formúla 1

Næturvinna skilaði Vettel besta tíma

Tæknimenn Red Bull unnu næturlangt í bíl Sebastian Vettel eftir að hann var ósáttur með gang mála á æfingum í gær. Sú vinna virðist hafa skilað sér á Hungaroring brautinni í Ungverjalandi dag því Vettel náði besta tíma á lokaæfingunni fyrir tímatökuna.

Formúla 1

Fimm ökumenn í þéttum hóp, en Hamilton enn sneggstur

Hamilton endurtók leikinn frá fyrri æfingunni á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Ungverjalandi í dag. Hann náði besta tíma á McLaren rétt eins og á fyrri æfingunni í morgun. Fernando Alonso varð í öðru sæti á Ferrari og var 0.241 úr sekúndu á eftir Hamilton.

Formúla 1

Vettel: Afsaknir eru tilgangslausar

Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að lið sitt verði að svara velgengni McLaren og Ferrari í síðustu mótum með góðum árangri um helgina. Fernando Alonso vann á dögunum á Silverstone brautinni í Bretlandi og Lewis Hamilton á McLaren kom fyrstur í mark á Nürburgring brautinni í Þýskalandi á sunnudaginn.

Formúla 1

Hamilton fljótastur í Ungverjalandi

Sigurvegari síðustu Formúlu 1 keppni, Lewis Hamilton á McLaren var fljótastur á fyrstu æfingu keppnisliða á Hungaroring brautinni í Ungverjalandi í morgun. Hann var 0.204 úr sekúndu sneggri um brautina en meistarinn Sebastian Vettel á Red Bull, en Fernando Alsono á Ferrari varð þriðji.

Formúla 1

Kobayshi og Perez áfram hjá Sauber 2012

Sauber Formúlu 1 liðið tilkynnti í morgun að Kamui Kobayahsi og Sergio Perez verða áfram hjá liðinu á næsta ári. Þá verður varaökumaður liðsins, Esteban Gutigraverrez áfram hjá liðinu, en hann og Perez eru frá Mexíkó, en Kobayahsi er japanskur.

Formúla 1

Button ekur í 200 Formúlu 1 mótinu á sunnudaginn

Það verða tímamót hjá Jenson Button hjá McLaren á sunnudaginn. Þá keppir hann í sínu 200 Formúlu 1 móti. Á sunnudaginn verður keppt á Hungaroring brautinni skammt frá miðborg Búdapest. Button vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 á brautinni árið 2006.

Formúla 1

Ferrari í sóknarhug í næstu mótum

Stefano Domenicali, yfirmaður Ferrari Formúlu 1 liðsins þarf að finna leið til að Fernando Alonso geti sótt á stigaforskot Sebastian Vettel í stigakeppni ökumanna. Alonso hefur í þremur síðustu mótum náði í annað sætið í tvígang og unnið eitt mót. Alonso er 86 stigum á eftri Vettel, þegar 9 mótum er ólikið á keppnistímabilinu.

Formúla 1

Alonso vonar að velgengni McLaren hjálpi Ferrari

Fernando Alonso hjá Ferrari varð í öðru sæti í þýska kappakstrinum í gær á eftir Lewis Hamilton hjá McLaren. Hann vonast til þess að McLaren ökumennirnir taki stig af Sebastian Vettel hjá Red Bull í komandi mótum og það hjálpi honum að sækja á Vettel í stigamótinu.

Formúla 1

McLaren lætur ekki deigan síga eftir sigur

Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins segir að lið sitt muni halda áfram að setja pressu á Sebastian Vettel, sem hefur gott forskot í stigamóti ökumanna. Lewis Hamilton á McLaren vann mót í Þýskalandi í gær, en Vettel varð fjórði á Red Bull bíl sínum.

Formúla 1

Hamilton vann háspennumót og sótti á Vettel í stigakeppni ökumanna

Sigur Lewis Hamilton í dag á Nurburgring brautinni í Þýskalandi í dag var McLaren liðinu mikilvægur og sýndi líka að Red Bull liðið ræður ekki lögum og lofum í meistaramótinu í Formúlu 1. Fernando Alonso á Ferrari vann síðustu keppni og forystumaður stigamótsins, Sebastian Vettel hjá Red Bull telur að liðið verði að taka sig á eftir daginn í dag.

Formúla 1

Hamilton vann í Þýskalandi

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton á McLaren var rétt í þessu að tryggja sér sigur í þýska kappakstrinum í Formúla 1 á Nurburgring. Er þetta annar sigur Hamilton í röð.

Formúla 1

Webber stefnir á sigur á Nürburgring

Mark Webber á Red Bull verður fremstur á ráslínu í þýska kappakstrinum sem fram á morgun. Hann varð hlutskarpastur í tímatökum í dag, en aðeins 0.055 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren.

Formúla 1

Vettel sneggstur á lokaæfingunni

Sebastian Vettel á Red Bull reyndist sneggstur á lokaæfingu keppnisliða á Nurburgring brautinni í dag. Mark Webber á samskonar bíl varð annar og Fernando Alonso á Ferrari þriðji. Vettel varð 0.133 úr sekúndu á undan Webber á æfingunni og 0.222 á undan Alonso.

Formúla 1

Webber sneggstur á seinni æfingunni

Mark Webber á Red Bull var fljótastur á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Nürburgring brautinni í Þýskalandi í dag. Hann varð 0.168 á undan Fernando Alonso á Ferrari, en Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji. Alonso var fljótastur á fyrri æfingu dagsins.

Formúla 1

Alonso á Ferrari á undan Red Bull ökumönnunum á Nürburgring brautinni

Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Nürburgring brautinni í Þýskalandi í dag. Um helgina fer fram tíunda umferð meistaramótsins og heimamaðurinn Sebastian Vettel stefnir á sigur, en hann er með 80 stiga forskot í stigamóti ökumanna. Sex þýskir ökumenn verða á heimavelli í keppninni á sunnudaginn og Vettel þeirra á meðal.

Formúla 1

Meistarinn Vettel vill vinna á heimavelli

Formúlu 1 meistarinn Sebastain Vettel hjá Red Bull er með forystu í stigamóti ökumanna og keppir á í þýska kappakstrinum Nürburgring brautinni í Þýskalandi um helgina, en tvær æfingar fara fram í dag á brautinni. Vettel er með 80 stiga forskot á liðsfélaga sinn Mark Webber.

Formúla 1

Button óheppinn á heimavelli

Bretinn Jenson Button hjá McLaren var frekar óheppinn í breska kappakstrinum á Silverstone í gær. Hann féll úr leik eftir að þjónustuliðinu hans mistókst að festa ró sem festir hægra framdekkið við framhjólabúnað bílsins í þjónustuhléi. Button ók af stað, en varð að stöðva þar sem dekkið var við það að detta undan.

Formúla 1

Hamilton: Einn besti breski kappakstur allra tíma

Lewis Hamilton hjá McLaren var í hörkubaráttu um verðlaunasæti um tíma í breska kappakstrinum á Silverstone í gær. Undir lokin barðist hann við Felipe Massa á Ferrari um fjórða sætið allt til loka og munaði aðeins 0.024 úr sekúndu á þeim í endamarkinu. Var harður slagur á milli þeirra í síðustu beygjunni í síðasta hringnum og Hamilton hafði betur.

Formúla 1