Erlent
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Hótar óbólusettum aftur handtökum Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hótaði því í dag að láta handtaka óbólusett fólk ef þau yfirgefi heimili sín. Faraldur kórónuveirunnar þar í landi er í mikilli dreifingu en fjöldi nýsmitaðra hefur tvöfaldast á nokkrum dögum. Erlent 6.1.2022 15:30
Biden segir Trump ógn við lýðræðið Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætlar í dag að marka það að ár er liðið frá því stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, réðust á þinghúsið. Það gerðu þau með því markmiði að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Erlent 6.1.2022 14:14
Covid dreifist hratt í borgum Indlands og meðal barna Kórónuveiran er aftur komin í tiltölulega mikla dreifingu á Indlandi þessa dagana og þá sérstaklega í borgum landsins. Innlagnir eru þó enn tiltölulega fáar og delta-afbrigðið, sem greindist fyrst á Indlandi, er enn ráðandi í landinu en einungis 2.630 hafa smitast af ómíkron-afbrigðinu, svo vitað sé. Erlent 6.1.2022 12:35
Ástralar og Japanir skrifa undir varnarsáttmála Ríkisstjórnir Japans og Ástralíu skrifuðu í morgun undir varnarsáttmála sem ríkin segja að sáttmálinn muni auka stöðugleika í Austur-Asíu. Yfirvöld í Ástralíu hafa á undanförnum árum aukið varnarsamstarf með Japan, Indlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi vegna áhyggja af auknum mætti Kína. Erlent 6.1.2022 11:11
Þúsundir hringja í bólusetningar-þjónustusíma fyrir óvissa Símaþjónusta sem læknar í Hollandi opnuðu fyrir þá sem hafa efasemdir um bólusetninguna gegn Covid-19 fær um þúsund símtöl á dag. Þeir sem hringja eru einstaklingar sem hafa ekki getað gert upp við sig hvort þeir eigi að þiggja bólusetningu. Erlent 6.1.2022 09:30
Ár frá árásinni á þinghúsið: Tak Trumps á Repúblikanaflokknum hefur aldrei verið þéttara Ár er liðið frá því að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, ruddi sér leið í gegnum tálma lögreglunnar og reyndi að koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Kosninga sem Trump tapaði gegn Joe Biden. Erlent 6.1.2022 09:11
Alríkislögreglan líklega búin að ráða stóra ráðgátu innan bókmenntaheimsins Það kann að vera að ráðgáta sem hefur plagað bókmenntaheiminn í nokkur ár sé loks leyst en bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa gabbað umboðsmenn og útgáfufyrirtæki til að senda sér handrit að óútgefnum bókum. Erlent 6.1.2022 08:12
Fram undan 2022: EM í sumar, HM í desember og kosningar í Frakklandi og Svíþjóð Árið 2021 er liðið og árið 2022 mætt í öllu sínu veldi. „Enginn veit neitt og allir eru að gera sitt besta“ á sem fyrr við á tímum kórónuveirufaraldursins og því ef til vill erfitt að spá fyrir um fréttaárið sem fram undan er. Erlent 6.1.2022 08:00
Páfinn segir það sjálfselskt að velja gæludýr fram yfir börn Frans páfi segir sjálfselskt þegar fólk velur að eignast gæludýr í stað barna. Fólki kynni að þykja það fyndið en svona væri raunveruleikinn, sagði hann þegar hann ávarpaði viðstadda í Páfagarði. Erlent 6.1.2022 07:32
Rússneskar hersveitir sendar til Kasakstan vegna mótmælanna Rússneskar hersveitir verða sendar til Kasakstan til að aðstoða við að koma á frið í landinu. Forsetinn Kassym-Jomart Tokayev hefur óskað eftir hjálp frá CSTO, hernaðarbandalagi Rússlands og fimm fyrrum sovétríkja, til að takast á við mótmælaöldu sem nú gengur yfir. Erlent 6.1.2022 06:49
Stjórnlaus rússnesk eldflaug á leið til jarðar Geimvísindamenn fylgjast nú grannt með rússneskri eldflaug sem er á hraðri leið til jarðar innan næsta sólarhrings. Erlent 5.1.2022 21:51
Bólusettir ferðamenn ekki í sýnatöku fyrir flug Bólusettir ferðalangar á leið til Englands þurfa ekki lengur að fara í fara í sýnatöku 48 klukkustundum fyrir komuna til landsins. Þá þurfa ferðamenn heldur ekki að vera í sóttkví á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr PCR prófi. Erlent 5.1.2022 21:35
Útlit fyrir hertar sóttvarnareglur á Tenerife Útlit er fyrir að Tenerife í Kanaríeyjum verði sett á fjórða og hæsta viðbúnaðarstig vegna Covid-19 á næstu dögum. Við það herðast reglurnar varðandi hvað má gera á eyjunni, hve margir mega koma saman og hvar. Erlent 5.1.2022 14:05
Ríkisstjórnin farin frá og lýst yfir neyðarástandi Kassym-Jomart Tokayev, forseti Kasakstans, hefur lýst yfir tveggja vikna neyðarástandi á ákveðnum svæðum í landinu í kjölfar mótmæla síðustu vikna. Erlent 5.1.2022 08:58
Derulo réðst á menn sem héldu hann vera Usher Tónlistarmaðurinn Jason Derulo réðst á menn í Las Vegas aðfaranótt þriðjudags eftir að mennirnir virtust ruglast á honum og tónlistarmanninum Usher. Atvikið átti sér stað á hóteli og réðst Derulo að mönnunum eftir að einn þeirra kallaði: „Hei Usher, farðu í rassgat“. Erlent 5.1.2022 08:57
Skutu enn einni eldflauginni á loft Eldflaug var skotið frá Norður-Kóreu í nótt og var það í fyrsta sinn í minnst tvo mánuði. Ekki liggur fyrir hvers konar eldflaug um er að ræða en henni var skotið frá sambærilegum stað og annarri eldflaug í fyrra sem ríkisstjórn einræðisríkisins sagði vera hljóðfráa eldflaug. Erlent 5.1.2022 08:24
Húðflúrlistamenn uggandi vegna banns gegn algengum efnum í húðflúrbleki Evrópskir húðflúrlistamenn eru uggandi vegna nýs banns Evrópusambandsins við þúsundum efna sem finna má í lituðu bleki sem notað er við húðflúrun. Erlent 5.1.2022 08:10
Macron segist munu leitast við að gera óbólusettum lífið leitt Emmanuel Macron Frakklandsforseti segist vilja gera öllum þeim sem ekki vilja láta bólusetja sig lífið leitt. Þetta kom fram í viðtali við forsetann í franska dagblaðinu Le Parisien. Erlent 5.1.2022 07:03
Vonast til þess að Bretar standist áhlaupið Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, vonast til þess að Bretar geti staðist núverandi áhlaup kórónuveirufaraldursins vegna ómíkronafbrigðisins, án þess að grípa þurfi til frekari samkomutakmarkana. Erlent 4.1.2022 23:41
Dómarinn á báðum áttum vegna samkomulagsins við Epstein Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins virðist á báðum áttum þegar kemur að tilraun lögmanna Andrésar til að nýta sér gamalt samkomulag Giuffre við Jeffrey Epstein til að fá málinu vísað frá dómstólum. Dómarinn er þó sagður hafa virst efins um þessa túlkun lögmanna prinsins. Erlent 4.1.2022 22:21
WHO segir frekari gögn benda til vægari einkenna ómíkron Frekari gögn benda nú til að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar hafi fremur áhrif á efri hluta öndunarvegarins og valdi vægari einkennum en fyrri afbrigði veirunnar. Erlent 4.1.2022 16:45
Sænsku konungshjónin með Covid-19 Karl Gústaf XVI, konungur Svíþjóðar, og Silvia drottning hafa bæði greinst með Covid-19. Erlent 4.1.2022 14:22
Forsætisráðherrann flúði vegna banatilræðis glæpagengja Þungvopnaðir glæpamenn reyndu að myrða Ariel Henry, forsætisráðherra Haítí, í um helgina, þar sem hann var á viðburði til að marka sjálfstæði ríkisins. Henry og föruneyti hans þurfti að flýja vegna mikillar skothríðar í borginni Gonaives en öryggissveitir svöruðu skothríðinni. Erlent 4.1.2022 12:29
Máli Nevermind-barnsins vísað frá dómi Dómstóll í Bandaríkjunum hefur vísað máli hins þrítuga Spencer Elden, sem var á umslagi Nevermind, plötu Nirvana frá árinu 1991, frá dómi. Elden hafði krafið meðlimi sveitarinnar um háar fjárhæðir þar sem hann sagði umslagið jafngilda barnaklámi. Erlent 4.1.2022 12:07
Tvíburar fæddust hvor á sínu árinu Fatima Madrigal fæddi dreng klukkan 23:45 á gamlárskvöld. Tvíburasystir drengsins mætti svo í heiminn á miðnætti en tvíburarnir fæddust því á sitthvoru árinu og eiga mismunandi afmælisdaga. Erlent 4.1.2022 09:25
Trump og tveimur börnum hans stefnt Ríkissaksóknari New York hefur stefnt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og tveimur börnum hans Ivönku Trump og Donald Trump yngri. Saksóknarinn krefst þess að þau beri vitni í rannsókn á Trump Organization, fyrirtæki Trumps. Erlent 4.1.2022 08:52
Halda nöfnum gesta leyndum til að koma í veg fyrir mismunun Forsvarsmenn Airbnb hafa ákveðið að halda nöfnum gesta í Oregon í Bandaríkjunum leyndum þar til bókun þeirra hefur verið staðfest af gestgjafa. Þetta er gert til að tryggja að gestgjafar mismuni ekki gestum á grundvelli kynþáttar. Erlent 4.1.2022 08:46
Það helsta í geimnum 2022: Aldrei meira um að vera í geimnum og leitin að lífi heldur áfram Vendingar í geimferðum og geimvísindum hafa verið miklar og hraðar á undanförnum árum og jafnvel sérstaklega í fyrra. Þessi þróun virðist ætla að halda áfram árið 2022 þar sem sífellt fleiri ríki og fyrirtæki koma sér fyrir á þessu sviði. Erlent 4.1.2022 08:01
Elizabeth Holmes fundin sek um fjársvik Dómstóll í Bandaríkjunum sakfelldi í gær Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos, af ákæru um að hafa svikið fé út úr fjárfestum. Réttarhöld í máli Holmes hafa staðið yfir í Kaliforníu síðustu mánuði. Erlent 4.1.2022 07:42
Bandaríkjamenn setja heimsmet í greindum á sólarhring Yfir milljón manns greindust með Covid-19 í Bandaríkjunum í gær en um er að ræða nýtt heimsmet í fjölda greininga sjúkdómsins á einum degi. Þá er þetta næstum tvöföldun á fyrra meti, sem féll í Bandaríkjunum fyrir fjórum dögum, þegar 590 þúsund manns greindust með kórónuveiruna. Erlent 4.1.2022 07:13