Erlent
84 85 86 87 88 89 90 91 92 … 334 ›
Enginn friður fyrr en markmiðum Pútíns er náð Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að markmið hans varðandi innrásina í Úkraínu gildi enn. Enginn friður verði fyrr en þeim markmiðum hafi verið náð. Þetta sagði forsetinn á maraþonfundi þar sem hann á að hafa svarað spurningum almennings í Rússlandi. Erlent 14.12.2023 12:20
Varar við hruni hjálparstarfs á Gasaströndinni Yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir ástandið fyrir íbúa Gasastrandarinnar vera sambærilegt því að búa í helvíti. UNRWA ber ábyrgð á því að dreifa neyðaraðstoð til íbúa Gasastrandarinnar. Erlent 14.12.2023 10:46
Fjöldahandtökur vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka Lögregla í Danmörku hefur handtekið fjölda einstaklinga og framkvæmt húsleit víða um land í samhæfðum aðgerðum í morgun vegna gruns um skipulagningu hryðjuverka í landinu. Erlent 14.12.2023 10:45
Sat inni í tuttugu ár fyrir að myrða börn sín en dómurinn ógiltur Hæstiréttur Nýja Suður-Wales í Ástralíu hefur ógilt þrjátíu ára fangelsisdóm Kathleen Folbigg, sem afplánaði tuttugu ár af dómnum áður en hún var náðuð í sumar. Hún var dæmd í þrjátíu ára fangelsi árið 2003 fyrir að myrða þrjú barna sinna og valda dauða þess fjórða. Hæstiréttur taldi sönnunargögn sem notuð voru í máli hennar óáreiðanleg. Erlent 14.12.2023 08:37
Segja þrýsting frá alþjóðasamfélaginu ekki skipta máli Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir að sótt verði fram til fullnaðarsigurs á Gasa svæðinu þrátt fyrir þrýsting alþjóðasamfélagsins. Erlent 14.12.2023 07:28
Fulltrúadeildin samþykkir formlega rannsókn á Biden Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi að hefja formlega rannsókn á embættisfærslum Joe Bidens forseta sem gætu svo leitt til ákæru til embættismissis. Erlent 14.12.2023 07:23
Dularfulli Brasilíumaðurinn viðurkennir loksins að hann sé Rússi Maðurinn sem lögreglan í Noregi handtók í fyrra vegna gruns um að hann væri rússneskur njósnari og ofursti í rússnesku leyniþjónustunni, hefur nú loks viðurkennt að hann er Rússi. Fram til þessa hefur hann sagst vera brasilískur. Erlent 13.12.2023 19:43
„Þau björguðu bókstaflega lífi mínu“ Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, mætti ekki á fund eftirlitsnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í dag. Þess í stað hélt hann blaðamannafund fyrir utan þinghúsið þar sem hann sakaði þingmenn Repúblikanaflokksins um að óheiðarleika. Erlent 13.12.2023 17:38
Dæla sjó í göng Hamas Ísraelskir hermenn eru byrjaðir að dæla sjó í neðanjarðargöng Hamas-samtakanna á Gasaströndinni. Vonast er til þess að þannig sé hægt að svæla vígamenn úr göngunum og eyðileggja þau. Erlent 13.12.2023 10:37
Tusk og ráðherrar hans sóru embættiseið Donald Tusk gekk á fund Andrzej Duda Póllandsforseta í morgun og sór embættiseið sem nýr forsætisráðherra Póllands. Ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Tusk sóru sömuleiðis embættiseið í forsetahöllinni í Varsjá. Erlent 13.12.2023 09:03
Herir Evrópu standa á brauðfótum eftir áratuga niðurskurð Frá því kalda stríðinu lauk á tíunda áratug síðustu aldar hafa ráðamenn í Evrópu varið sífellt minni fjármunum til varnarmála og hergagnaframleiðslu. Vopnabúr Evrópu eru svo gott sem tóm og getan til hergagnaframleiðslu lítil. Erlent 13.12.2023 08:00
Samkomulag á COP28 í höfn COP28-loftsráðstefnunni í Dubaí lauk nú á áttunda tímanum sem tímamóta samkomulagi þar sem ríki heims eru hvött til þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Erlent 13.12.2023 07:35
Selenskí á leiðtogafundi Norðurlandanna í Osló Volodómír Selenskí Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Noregs í morgun en hann hefur síðustu daga verið í Bandaríkjunum til að afla Úkraínu stuðnings í stríðinu gegn Rússum. Erlent 13.12.2023 07:26
Kalla á umskipti ríkja heims í átt frá notkun jarðefnaeldsneytis Ákall um umskipti ríkja heims í átt frá notkun jarðefnaeldsneytis er að finna í nýjum drögum að lokayfirlýsingu COP28-loftslagsráðstefnunnar sem kynnt voru í nótt. Erlent 13.12.2023 06:14
Ekkert spurst til Navalní og Þórhildur Sunna krefst upplýsinga Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata og aðalfulltrúi pólitískra fanga á Evrópuráðsþinginu hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hún krefur rússnesk yfirvöld um að upplýsa lögmenn Navalní, pólitísks andstæðings Pútín, um staðsetningu hans og leyfa þeim að hitta hann. Erlent 13.12.2023 00:16
Vopnahléstillagan samþykkt og Ísland kaus með Atkvæðagreiðslu á neyðarfundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um kröfu um tafarlaust vopnahlé er nú lokið. Tillagan var samþykkt með 153 atkvæðum gegn tíu en 23 þjóðir sátu hjá. Ísland var meðal þeirra þjóða sem samþykktu tillöguna. Erlent 12.12.2023 22:11
Heilu fjölskyldurnar þurrkaðar út í árásum Ísraelshers Heilu fjölskyldurnar voru þurrkaðar út í árásum Ísraelshers á bæi á Gazaströndinni síðast liðna nótt. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að tekist hafi að hafa hendur í hári nokkurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í árásum og mannránum í Ísrael í byrjun október. Erlent 12.12.2023 19:21
Telja þúsundir Rússa hafa fallið við Avdívka Leyniþjónustur Bandaríkjanna áætla að um þrettán þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í áhlaupum Rússa í austurhluta Úkraínu frá því í október og þá sérstaklega áhlaupinu á bæinn Avdívka í austurhluta Úkraínu. Þá hafi Rússar misst rúmlega 220 skrið- og bryndreka á þessu tímabili. Erlent 12.12.2023 17:05
Norskt tankskip varð fyrir eldflaug frá Hútum Norska tankskipið Strinda varð í gærkvöldi fyrir eldflaug sem skotið var af Hútum í Jemen. Hútar hafa heitið því að stöðva ferð allra skipa sem siglt er til Ísrael og hafa gert árásir á fjölda skipa á undanförnum dögum. Erlent 12.12.2023 13:47
Fimm látnir eftir að lyfta hrapaði í Svíþjóð Fimm eru látnir eftir að lyfta hrapaði um tuttugu metra til jarðar á byggingarsvæði í Ursvik í Sundbyberg, norðvestur af Stokkhólmi, í gær. Erlent 12.12.2023 11:17
Sögðu þungunina ekki ógna lífi móðurinnar nóg Hæstiréttur Texas komst að þeirri niðurstöðu í gær að hin 31 árs gamla Kate Cox megi ekki fara í þungunarrof, þó fóstri hennar sé ekki hugað líf. Þar með sneri dómstóllinn niðurstöðu neðra dómstigs í ríkinu sem sagði hana mega það eftir að fóstur hennar greindist með banvænan kvilla. Erlent 12.12.2023 09:50
Ný ályktun um tafarlaust vopnahlé lögð fyrir á allsherjarþingi SÞ Ný ályktun verður lögð fyrir neyðarfund allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem fram fer í dag vegna átakanna á Gasa. Erlent 12.12.2023 06:56
Donald Tusk kjörinn forsætisráðherra Donald Tusk hefur verið kjörinn forsætisráðherra Póllands eftir Mateusz Morawiecky fékk ekki meirihluta í pólska þinginu í dag til að leiða næstu ríkisstjórn landsins. Flokkur Tusk hefur verið níu ár í minnihluta pólska þingsins. Erlent 11.12.2023 17:11
Fimmtán refsað vegna Discord-lekans Fimmtán starfsmönnum flughers Bandaríkjanna var refsað vegna Discord-lekans svokallaða. Jack Teixeira er sakaður um að hafa lekið mikið af leynilegum gögnum á netið en rannsókn hefur leitt í ljós að yfirmenn hans hafi brugðist og að menning andvaraleysis hafi gert honum kleift að leka gögnunum. Erlent 11.12.2023 16:58
Navalní horfinn úr fangelsi Alexei Navalní, pólitískur andstæðingur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, missti af réttarhöldum í morgun, eftir að lögmenn hans höfðu ekki náð tali af honum í tæpa viku. Hann átti að sækja réttarhöldin gegnum fjarfundarbúnað en nú segja forsvarsmenn fanganýlendunnar þar sem hann hefur verið í afplánun að hann sé ekki lengur þar. Erlent 11.12.2023 14:32
Hershöfðingjar funda um mögulegt vopnahlé Hershöfðingjarnir Mohamed Hamdan Daglo og Abdel Fattah al-Burhan hafa samþykkt að hittast til að reyna að binda enda á blóðuga styrjöld í Súdan. Gífurleg óreiða hefur ríkt í Súdan undanfarna mánuði og hafa þúsundir fallið vegna átaka hershöfðingjanna og sveita þeirra. Erlent 11.12.2023 12:45
Fundu hundrað milljóna króna hring í ryksugupoka Starfsmenn Ritz-hótelsins í París fundu nýlega hring sem er virði rúmlega hundrað milljóna íslenskra króna í ryksugupoka. Eigandi hringsins hafði sakað starfsmann hótelsins um að ræna hringnum. Erlent 11.12.2023 12:06
Leita aðstoðar við að stöðva árásir Húta á flutningaskip Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa biðlað til ráðamanna annarra þjóða til að taka þátt í að tryggja öryggi skipa á Rauðahafi, eftir ítrekaðar árásir Húta í Jemen á flutningaskip og herskip á svæðinu. Erlent 11.12.2023 11:01
Allsherjarþing SÞ hittist á neyðarfundi vegna ástandsins á Gasa Ísraelskir skriðdrekar eru komnir inn í miðbæ borgarinnar Khan Younis á Gasa svæðinu. Hart hefur verið barist í borginni um helgina auk þess sem loftárásir hafa verið gerðar ítrekað. Erlent 11.12.2023 07:17
Örlög stjórnar Morawiecki ráðast í dag Pólska þingið mun í dag greiða atkvæði um hvort Mateusz Morawiecki, starfandi forsætisráðherra, eigi að leiða næstu ríkisstjórn landsins í kjölfar þingkosninganna sem fram fóru í október. Erlent 11.12.2023 06:58