Innlent

Loka Haga­borg í það minnsta í tvö ár

Loka á leikskólanum Hagaborg í Vesturbæ Reykjavíkur í tvö ár. Börn og starfsfólk leikskólans færast yfir á leikskólann Grandaborg. Bæta á við færanlegri einingu við Grandaborg til að fjölga plássum en breytingin fækkar leikskólaplássum í Reykjavík tímabundið um 18 á meðan framkvæmdunum stendur.

Innlent

Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu

Ingunn Rut Sigurðardóttir, ein sex ákærðra í Reykholtsmálinu, játaði fyrir dómara að hafa tekið þátt í frelsissviptingu og ólögmætri nauðung. Hún neitar því að hafa tekið þátt í ofbeldi. Ingunn brast í grát þegar hún játaði.

Innlent

Víð­tækar götulokanir á nýrri hlaupa­leið Reykjavíkurmaraþons

Tæp fjórtán þúsund hafa skráð sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár sem fer fram næsta laugardag. Flestir eru skráðir til að hlaupa tíu kílómetra, eða um tíu þúsund, og svo tæp fjögur þúsund í hálfmaraþon. Rúm tvö þúsund eru skráð í skemmtiskokk og svo um 1.500 í heilt maraþon.

Innlent

Segjast ekki ætla að skipta sér af at­kvæða­greiðslunni

Fulltrúar rússneskra stjórnvalda segjast ekki hafa neinn áhuga á því að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi 29. ágúst um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rússar hafa ítrekað verið sakaðir um að reyna að hafa áhrif á kosningar og atkvæðagreiðslur í Evrópu, meðal annars í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016.

Innlent

Fimm­tíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu

Hart var tekist á um kostnað Íslands við mögulega ESB-aðild í Pallborðinu á Vísi í dag. Áfram Ísland segir árlegan kostnað geta numið fimmtíu milljörðum króna en fulltrúar já-hreyfinganna hafna þeirri tölu alfarið og segja villandi að setja hana fram án þess að mögulegur ávinningur sé tekinn með.

Innlent

Virtist tauga­ó­styrkur og brast í grát

„Hann var mjög taugaóstyrkur,“ segir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir fréttamaður er hún lýsir fasi Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag en hann er meðal sakborninga í Reykholtsmálinu. Á einum tímapunkti hafi hann brostið í grát þegar hann talaði um eiginkonu sína.

Innlent

Djúp­fölsun nýtt til fjár­svika á gervi­fjar­fundum

Djúpfölsuð myndbönd þar sem ímynd þekktra einstaklinga er notuð verða sífellt algengari að sögn Defend Iceland. Tæknin sé orðin þannig að nánast hver sem er geti útbúið slíkt myndefni og til að koma í veg fyrir möguleg svik er fjölskyldum ráðlagt að nota lykilorð í samskiptum sín á milli.

Innlent

Hin hliðin ljúgi að lands­mönnum

Forsvarsfólk bæði já- og nei- hreyfinga saka hina hliðina um að hafa farið með rangt mál frá því að kosningabarátta hófst. Þau mættust í Pallborði Vísis í dag. Fréttamaður sem stýrði Pallborðinu hafði á orði að það væri um stund sem forsvarsmenn væru að ræða hvor sinn hlutinn, svo ólíkar væru áherslurnar.

Innlent

„Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við

Málskotsréttur forseta hverfur ekki þó að Ísland myndi ganga inn í ESB en verður þó takmarkaður, að sögn Birgis Ármannssonar fyrrverandi þingforseta. „Salami-aðferð“ Evrópusambandsins í viðræðum gæti að hans mati gert Íslendingum erfiðara fyrir ef þeir vilja hætta við hugsanlega aðildarumsókn. „Flest mannanna verk eru nú þannig að það er hægt að snúa þeim við,“ segir hann samt.

Innlent

Verk­takar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“

„Ef þessir háu herrar í svörtuloftum ætla að fara að botnfrysta markaðinn og þar með framleiðslu íbúðarhúsnæðis, þá vitum við hvernig þetta endar,“ segir Vignir S. Halldórsson verktaki sem óttast að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki vexti á morgun. „Þá springur allt í loft upp aftur og tugprósenta hækkun á íbúðaverði verður til.“

Innlent

Ráðu­neytið birtir út­reikningana

Stjórnarráð Íslands hefur gefið út mat á kostnaði við aðild að Evrópusambandinu en þar kemur fram að hugsanleg nettóframlög Íslands til Evrópusambandsins orðið um átta til þrettán milljarðar. Áður hefur verið greint frá því að Áfram Ísland standi við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Forsætisráðherra hefur fullyrt að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“

Innlent

Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina

Frá því um miðjan maí hafa þeir sem bíða eftir að ná sambandi við þjónusturáðgjafa Reykjavíkur heyrt lög í stað í hefðbundinnar biðtónlistar. Tvö lög urðu fyrir valinu og óhætt er að fullyrða að þau eigi vel við. Það eru Við Reykjavíkurtjörn, lag Gunnars Þórðarsonar við texta Davíðs Oddssonar, og Fröken Reykjavík, lag Jóns Múla Árnasonar við texta Jónasar Árnasonar, bróður hans.

Innlent

Óvissustigi í Öskju af­lýst

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur aflýst óvissustigi vegna landriss í Öskju eftir að nýjustu mælingar sýna að atburðarásinni sem hófst árið 2021 sé lokið.

Innlent

Dóms­mála­ráð­herra valdi Ás­gerði í Hæsta­rétt

Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ásgerður Ragnarsdóttir verði skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026. Hún var einn fjögurra Landsréttardómara sem sóttu um embættið og voru metnir jafnhæfir til að hljóta skipun.

Innlent

Á­fram Ís­land vísar full­yrðingum Krist­rúnar á bug

Áfram Ísland stendur við útreikninga á að kostnaður Íslands að Evrópusambandinu muni hlaupa á fimmtíu milljörðum króna. Samtökin vísa á bug fullyrðingum forsætisráðherra um að upphæðin sé „ekki nándar nærri því sem gæti komið út úr þessum viðræðum.“

Innlent

Tíu af tuttugu efstu em­bættis­mönnunum hjá orku­fyrir­tæki

Tryggvi Þór Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Rarik til tveggja áratuga, trónir á toppi listans yfir launahæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt blaðinu var hann með um 5,8 milljónir í laun á mánuði í fyrra.

Innlent

Hafi aldrei farið í Reyk­holt

Halldór Logi Sigurðsson, einn af sex ákærðu í Reykholtsmálinu, segist aldrei hafa komið á heimili brotaþola í Reykholti heldur hafi annar maður farið með. Hann gaf skýrslu fyrir dómara í morgun.

Innlent

Krist­rún skýtur fimm­tíu milljarðana niður

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 

Innlent