Íslenski boltinn

Upp­gjörið: Valur - Þróttur 0-1 | Sigra manni færri á úti­velli

Þróttur náði í mikilvægan sigur í Bestu deild kvenna þegar liðið lagði Val að velli, 1-0, á Hlíðarenda í kvöld. Eina mark leiksins skoraði Unnur Dóra Bergsdóttir í fyrri hálfleik og dugði það Þrótti til sigurs þrátt fyrir að hafa leikið manni færri síðasta hálftímann. Með sigrinum styrkti Þróttur stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar og er nú komið með tólf stig eftir sjö umferðir. Valur situr hins vegar áfram í sjöunda sæti með sjö stig.

Íslenski boltinn

And­leysi í upp­eldis­félaginu komið Böðvari á ó­vart

Böðvar Böðvars­son, leikmaður ÍA, mun í kvöld í fyrsta sinn mæta upp­eldis­félagi sínu FH í Kapla­krika. Krafta Böðvars var ekki lengur óskað í Hafnarfirði og hefur honum frá fyrstu viku liðið eins og heima hjá sér á Skaganum. And­leysi FH liðsins oft á tíðum hefur komið honum á óvart í byrjun tíma­bils.

Íslenski boltinn

Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða

Í gær tók Stjarnan á móti Víkingi í níundu umferð Bestu deildar karla. Víkingur vann leikinn 3-1 en auk þess að vera stórleikur í deildinni var einnig um að ræða styrktarleik fyrir markvörðinn Ingvar Jónsson sem er í dag leikmaður Víkings en var á sínum tíma á mála hjá Stjörnunni. Ingvar berst í dag við krabbamein sem hann var greindur með fyrir skömmu.

Íslenski boltinn