Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Aron Guðmundsson skrifar 13. september 2026 10:02 Arnar Freyr er ósáttur með þá ósanngjörnu meðferð sem Aron, fyrirliði KR, hefur fengið fyrir að tala hug sinn. Vísir/Samsett Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, hefur ekki gefið upp von á því að KR verði Íslandsmeistari og kemur fyrirliða sínum, sem hefur farið mikinn innan sem utan vallar upp á síðkastið, til varnar. Honum finnst hann hafa fengið óréttláta meðferð.
Arnar Freyr sneri aftur inn á völlinn í mark KR-inga í hálfleik gegn Skagamönnunum á dögunum, um fjórum mánuðum eftir að hafa slitið sin í hné í leik gegn Keflavík í fyrstu umferð Bestu deildarinnar. „Það var talað um að þetta gætu verið fjórir mánuðir sem var raunin. Það gekk allt vel, ekkert bakslag. Allt eins og í sögu,“ segir Arnar í samtali við Vísi. „Ég var hundrað prósent klár í að koma inn á. Ef þú spyrð mig hefði ég verið til í að þetta hefði gengið hraðar fyrir sig. Að vera frá í þrjá til fjóra mánuði er alveg langur tími. En ég held að þetta sé bara á eins góðum tíma og hægt er.“ Klippa: Trú á titli og kemur fyrirliðanum til varnar Erfitt að sitja upp í stúku KR-ingar hafa að margra mati spilað skemmtilegasta fótboltann á tímabilinu í Bestu deildinni. Liðið situr í 3. sæti og hefur skorað flest mörk af liðum deildarinnar. Það reyndist Arnari erfitt að sitja uppi í stúku og horfa á. „Hundrað prósent. Sérstaklega þegar gengur vel þá langar mann að taka þátt í því. Það var alveg pínu súrt að þurfa að sitja uppi í stúku og fylgjast með þessu en samt líka gaman að sjá að við séum á þeim stað sem við erum á í dag.“ Mikil stemning hefur verið fyrir KR í Vesturbænum í sumar.Vísir/Hulda Margrét Trú á titli lifir KR er níu stigum á eftir toppliði Víkings Reykjavíkur og hefur verið að hiksta í undanförnum leikjum þegar að nú eru aðeins fimm umferðir eftir af deildinni. KR-ingar gefa ekki upp von á Íslandsmeistaratitli fyrr en sú von er endanlega úr sögunni. „Það eru níu stig í Víking. Það getur allt gerst í fótbolta. Meðan það er enn von þá trúir maður. Markmið. Við ætlum bara að vinna alla leiki og sjá hvort það dugi ekki til að enda í fyrsta sætinu. Svo kemur bara í ljós hvort það takist eða ekki.“ Engar klisjur bara beint frá hjartanu Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hefur farið mikinn í viðtölum á undanförnum vikum og fengið á sig skerf af gagnrýni fyrir sína framkomu. Innan vallar hefur hann sýnt snilli sína og raðað inn mörkum. Arnar kemur fyrirliða sínum til varnar. „Hann talar beint frá hjartanu og er að segja það sem honum finnst. Við ættum frekar að fagna því heldur en hitt að hafa einhverja leikmenn sem eru tilbúnir að fara út fyrir rammann, tala ekki bara í einhverjum klisjum og einhverju dóti.“ Hann hefur fengið smá hita á sig. Finnst þér það óréttlátt? „Já, mér finnst það. Bara flott ef fólk hefur einhverja skoðun á þessu. Ef það eiga allir að vera með einhverjar klisjur þá er leiðinlegt að hlusta á það. Ég fagna þessu allavega. Ég hlakka alltaf til þegar ég veit að hann fer í viðtöl. Bíð spenntur eftir því að horfa á þau. Ég segi bara meira af þessu.“ KR tekur á móti ÍA í fyrstu umferð efri hluta Bestu deildarinnar í dag klukkan tvö. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 2.
Besta deild karla KR Íslenski boltinn Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Enski boltinn „Stundum þarftu smá löðrung til að fara í fimmta gírinn“ Sport Fleiri fréttir Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Sjá meira