Lífið

„Þetta kemur eins og himnasending inn í unglingaheiminn sem er svo harður“
Jákvæð sálfræði verður viðfangsefni fermingarfræðslu Þjóðkirkjunnar næstu árin. Þær Marit Davíðsdóttir og Yrja Kristinsdóttir, sem standa á bak við dagbókina Gleðiskrudduna, gengu til liðs við Þjóðkirkjuna og tóku að sér það mikilvæga verkefni að kynna fermingarbörn fyrir viðfangsefnum á borð við núvitund og sjálfsvinsemd.

Idol seinkað vegna landsleiksins á föstudag
Idol þátturinn á föstudag verður á dagskrá á nýjum tíma, klukkan 21:00 en ástæðan er leikur karlalandsliðsins í handbolta. Áhorfendur þurfa því ekki að velja milli þess að horfa á Idol eða landsleikinn.

Myndir af nýjum stúdentaíbúðum á Hótel Sögu líta dagsins ljós
Félagsstofnun stúdenta hefur nú birt fyrstu myndirnar af nýjum stúdentagörðum í húsnæðinu sem áður var Hótel Saga.

Dætur Lisu Marie munu erfa Graceland
Dætur Lisu Marie Presley munu erfa Graceland í Memphis í Tennessee sem var heimili tónlistarmannsins Elvis Presley og í dag eitt vinsælasta safn Bandaríkjanna.

Undraveröld Breiðamerkurjökuls: „Þetta er algjörlega galið“
„Ég er búinn að vera að fylgjast með ótrúlega fallegum hellum,“ segir Garpur Elísabetarson. Eftir að sjá myndir og myndbönd á netinu fór hann í leiðangur að skoða íshella og svelga í Breiðamerkurjökli.

„Ég man alltaf eftir því þegar ég lagði barnið á bekkinn og horfði í augun á pabbanum“
Slökkviliðsmaðurinn Einar Örn Jónsson byrjaði ungur að sinna björgunarsveitarstörfum. Hann var staddur á björgunarsveitaræfingu í Borgarfirði þegar það barst útkall sem hann mun aldrei gleyma. Tveir átta ára gamlir drengir höfðu drukknað.

Arnmundur og Ellen eignuðust dreng
Leikaraparið Arnmundur Ernst Backman og Ellen Margrét Bæhrenz eignuðust dreng nú á dögunum.

Tíu herbergja villa í Garðabæ leitar eiganda
Við Brúnás í Garðabæ stendur 530 fermetra glæsihýsi sem nú er til sölu.

Verður minnst við Graceland og jörðuð við hlið sonarins
Sérstök minningarstund verður haldin um hina bandarísku Lisu Marie Presley við Graceland í Memphis í Tennessee næstkomandi sunnudag og verður hún opin almenningi.

Myndaveisla frá Idol á föstudag
Sjötti þáttur af Idol var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 á föstudag. Átta keppendur stigu þar á glæsilegt svið og fluttu lög fyrir dómnefndina og áhorfendur í sal og heima í stofu.

„Með fullt skott af kók í dós, fullan bíl af fólki og ólöglegur að keyra“
Idol kynnirinn og leikarinn Aron Már Ólafsson var gestur í síðasta þætti af Körrent. Þar ræddi hann meðal annars um Idolið og fór í svokallaðar „Körrent Questions“ þar sem hann var spurður spjörunum úr.

Vesturbæingar fögnuðu þorranum saman öll sem eitt
Þorrablót Vesturbæjar fór fram um helgina í KR-heimilinu. KR konur sem halda viðburðinn eru 50 ára á árinu. Þær konur sem stofnuðu viðburðinn og áttu heimangengt voru heiðursgestir á viðburðinum um helgina.

Myndaveisla frá dularfullu frumsýningarkvöldi Macbeth
Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu á föstudaginn þegar sýningin Macbeth var frumsýnd fyrir fullu húsi. Eins og fram hefur komið á Vísi gerðust dularfullir atburðir á sýningunni, enda var óhappadagurinn sjálfur, föstudagurinn þrettándi.

Rappaði fyrir átrúnaðargoðið: „Ég verð bara eins og kleina í svona aðstæðum“
Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir var viðmælandi í fyrsta þætti af glænýrri þáttaröð af Tónlistarmönnunum okkar sem hóf göngu sína á Stöð 2 í gær.

Miley Cyrus skýtur fast á fyrrverandi í nýju lagi
Söngkonan Miley Cyrus var að senda frá sér lagið Flowers og það virðist sem lagið fjalli um hjónaband hennar og Liam Hemsworth. Aðdáendur hennar eru að minnsta kosti sannfærðir um það.

Kvikmyndastjarnan Gina Lollobrigida er látin
Ítalska leikkonan, Gina Lollobrigida,er látin, 95 ára að aldri.Lollobrigida var ein stærsta kvikmyndastjarna sjötta og sjöunda áratugar síðustu aldar og var henni oft lýst sem „fegurstu konu í heimi“.

„Ég er ekkert að fara að stoppa hérna“
„Í enda dagsins er ég bara ótrúlega stoltur af mér og minni frammistöðu. Mér finnst eins og ég hafi gert mitt besta og ef það er ekki nóg þá er það bara þannig,“ segir Idol keppandinn Birgir Örn Magnússon sem sendur var heim síðasta föstudag.

Stjörnulífið: Stórafmæli, Macbeth og barnasturtur
Skemmtikrafturinn Eva Ruza hélt upp á fertugsafmælið sitt um helgina og fór alla leið. Á meðal þeirra sem komu fram voru GDRN, Hreimur og Hjálmar Örn.

Hildur vann til verðlauna á Critics‘ Choice
Hildur Guðnadóttir vann til verðlauna fyrir bestu tónlist í kvikmynd á Critics‘ Choice verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt.

Inga Auðbjörg og Helgi Hrafn skilja
Inga Auðbjörg K. Straumland, formaður Siðmenntar, og Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, eru skilin að borði og sæng.

The Wire-leikari látinn
Bandaríski leikarinn Al Brown, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í The Wire, er látinn, 83 ára að aldri.

„Ég var búin að steingleyma að við hefðum gert þetta“
„Þetta er stórskemmtilegt. Ég var búin að steingleyma að við hefðum gert þetta. Svo fékk ég bara email í morgun með þeim skilaboðum að skeytið væri fundið. Það tók mig smá tíma að átta mig á hverju um væri verið að tala,“ segir Brynhildur Yrsa Valkyrja um flöskuskeyti sem sett var í sjóinn í Hafnarfirði í maí árið 2020. Skeytið fannst á vesturströnd Frakklands um helgina.

Kleini fer í meðferð
Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, hefur skráð sig í meðferð í Krýsuvík. Hann segir síðustu mánuði hafa tekið á og fer því á meðferðarheimili á miðvikudaginn.

Á löggustöð í úlpu með frosinn gogg
Lögreglan á Suðurnesjum fann gæs með frosinn gogg á vappi í gær og bauð henni að hlýja sér í úlpu á lögreglustöðinni.

DJ Sóley er orðin amma: „Yndislegir tímar framundan“
Sóley Kristjánsdóttir, vörumerkjastjóri og plötusnúður og eiginmaður hennar Freyr Frostason eignuðust sitt fyrsta barnabarn nú á dögunum.

Fréttakviss vikunnar: Ertu með á nótunum?
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi vikunnar sem er í boði á Vísi á laugardögum.

Guðmundur Felix fagnar tveggja ára afmæli
Guðmundur Felix Grétarsson fagnar því að tvö ár séu liðin frá því að hann fékk ágræddar hendur. Frönsk sjónvarpsstöð tók hús á honum í dag.

Þessi var sendur heim úr Idolinu
Fyrsti þátturinn í beinni útsendingu Idolsins fór fram í Idolhöllinni fyrr í kvöld. Þátturinn var æsispennandi en átta keppendur mættu til leiks. Aðeins sjö komust áfram og var því einn keppandi sendur heim eftir kvöldið.

Manúela fékk heilablóðfall um jólin
Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar Miss Universe á Íslandi lenti í því yfir hátíðirnar að fá heilablóðfall aðeins 39 ára gömul. Hún segist þakklát og heppin að ekki fór verr.

Nanna úr Of Monsters and Men gefur út sitt fyrsta sóló lag
Tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir gaf í dag út sitt fyrsta sóló lag, Godzilla. Nanna hefur gert garðinn frægan með hljómsveitinni Of Monsters and Men en fetar nú nýjar slóðir með þessu verkefni.