Lífið

Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart

Það er eitthvað sérstakt við að ganga inn á veitingastaðinn Brasserie Ask við Suðurlandsbraut. Þar mætast áratugalangar hefðir, heimilislegt andrúmsloft og matarilmur sem margir Íslendingar þekkja vel. Í ár fagnar þessi rótgróni veitingastaður 60 ára afmæli og fram undan er ein skemmtilegasta vertíð ársins.

Lífið samstarf

Hlýtur Vigdísar­verð­launin 2026

Sænski þýðandinn, ritstjórinn og rithöfundurinn John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin í ár. Rektor Háskóla Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra munu afhenda verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands 12. nóvember næstkomandi og mun John Swedenmark flytja erindi af því tilefni.

Menning

Hall­dóra Geir­harðs og Nikko taka að sér farar­stjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu

Það verður nóg um að vera í ítalska skíðabænum Madonna di Campiglio í vetur þegar hjónin Halldóra Geirharðsdóttir, Dóra, og Nicolas Pétur Blin, Nikkó, taka við fararstjórn í skíðaferðum Úrvals Útsýnar. Þau þekkja svæðið vel eftir fjölmargar fjölskylduferðir og lofa góðum félagsskap, frábærum skíðabrekkum, ítalskri matargerð og hæfilegum skammti af húmor.

Lífið samstarf

Hvar eru Píratarnir sem fóru með himin­skautum?

Fjórtán árum eftir stofnun róa Píratar lífróður. Flokkurinn flaug hæst í skoðanakönnunum í apríl 2016 eftir útgáfu Panamaskjalanna og mældist þá með 43 prósent, mest allra flokka á landinu. Um haustið fóru fram Alþingiskosningar þar sem Píratar lækkuðu flugið verulega. Þeir fengu samt 14,5 prósent atkvæða og tíu þingmenn kjörna. Hvar eru þessir Píratar í dag?

Lífið

Elliði Vignis­son er eins og offitu-aktívisti

Í síðasta mánuði fór fram á vegum læknadeildar Harvard-háskóla málfundur um offitu. Á fundinum var dregið í efa að offita hefði neikvæð áhrif á heilsu. Þyngdarstjórnunarlyf á borð við Ozempic voru sögð verkfæri heimsvaldasinna og uppáskrift þeirra fasismi.

Lífið

Notch setur glæsihúsið á sölu

Markus Persson, höfundur Minecraft, hefur sett stórhýsi sitt í Beverly Hills í Kaliforníu á sölu. Húsnæðið er verðsett á sjötíu milljónir bandaríkjadala, eða 8,5 milljarða króna.

Leikjavísir

Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið

Eitt þekktasta, og að margra mati mikilvægasta, tímarit sem birti og skrásetti fréttaljósmyndir 20. aldarinnar, snýr nú aftur en það kom fyrst inn á sjónarsviðið fyrir níutíu árum. Útgáfu blaðsins var hætt upp úr 1970 þegar sjónvarpið ruddi sér rúms en það var svo endurvakið átta árum síðar og gefið út einu sinni í mánuði þar til um aldamótin.

Menning

„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“

„Þetta var ekki planið, en þetta er samt allt sem ég óskaði mér og meira til,“ segir hin 27 ára gamla Eyrún Björk Jakobsdóttir. Eyrún starfar sem leikkona í Danmörku en skaust upphaflega upp á stjörnuhimininn árið 2018 í hlutverki sínu sem Stella í Lof mér að falla.

Lífið

Í fyrsta sinn utan Úkraínu

Það var margt um manninn á Listasafni Íslands í síðustu viku við opnun sýningarinnar Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar eru til sýnis 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Verkin eru frá 12. öld fram á öndverða 19. öld og hafa mikið listsögulegt og trúarlegt gildi.

Menning

Sjálfuglaður ráð­herra og allt í boði mysu

Í nýjasta þættinum af Hvað er að frétta? var sjónum til að mynda beint að þeim ráðherra sem hefur tekið hvað flestar sjálfur frá embættistöku. Þá var kvennaklefinn hjá landsliðinu í fótbolta tekinn fyrir.

Lífið

Sjóð­heitar í ís­köldu teiti

Margar af helstu gellum landsins komu saman á veitingastaðnum Lólu í gærkvöldi og fengu forskot á forsýningarsæluna í bíósalnum þar á nýjustu IceGuys kvikmyndinni. Sunneva Einars var meðal gesta en hún fer sjálf með hlutverk í myndinni.

Lífið

Enn og aftur dæmdur í fangelsi

Íranski leikstjórinn Jafar Panahi, sem hlaut Gullpálmann á Cannes í fyrra, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Íran og var jafnframt settur í tveggja ára samfélagsmiðla- og ferðabann. Ekki liggur fyrir hvað Panahi vann sér til sakar en hann hefur áður verið dæmdur fyrir að taka þátt í „áróðursaðgerðum“ gegn írönskum yfirvöldum. Árið 2010 hlaut leikstjórinn sex ára fangelsisdóm og var settur í tuttugu ára kvikmyndagerðarbann.

Bíó og sjónvarp

Ís­land ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Euro­vision

Alls taka 36 lönd þátt í Eurovision á næsta ári. Kanada tekur þátt í fyrsta sinn og Norður-Makedónía snýr aftur eftir fjögurra ára hlé. Spánn og Slóvenía hafa frest þar til í desember til að tilkynna um þátttöku. Ísland er ekki á lista en stjórn RÚV hefur gefið út að þau myndu ekki vilja að Ísland tæki þátt nema Ísrael yrði meinuð þátttaka. Sem hefur ekki verið gert. 

Tónlist

„Eins og ein sál í tveimur líkömum“

„Ég samdi lagið eftir erfitt tímabil í lífi mínu. Eftir að hafa komist í gegnum það fannst mér hversdagsleikinn svo fallegur,“ segir tónlistarkonan Brynja Bjarnadóttir sem frumsýnir hér að neðan tónlistarmyndband við nýja lagið sitt Rainbow.

Lífið

Tryggðu sér sigurinn á ó­trú­legan hátt

Í fyrstu viðureigninni í 8-liða úrslitum Kviss mættust HK og Tindastóll. HK-ingar tefldu fram þeim Hjörvari Hafliðasyni og Andra Má Eggertssyni en fyrir hönd Stólanna mættu þeir Sverrir Bergmann og Auðunn Blöndal.

Lífið

Kakka­lakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit

Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda.

Lífið

Kaffi Flauel er nýtt kaffi­hús í Ár­bæ

Ilmandi kaffi, freistandi tertur og léttar kvöldveitingar eru meðal þess sem tekur á móti gestum á Kaffi Flauel í Selási. Karen Olga Ársælsdóttir opnaði kaffihúsið í ágúst eftir að hafa lengi saknað þess að geta rölt á notalegt hverfiskaffihús. Nú hittast þar nágrannar yfir kaffibolla, vinir setjast niður með vínglas og börnin úr hverfinu líta inn eftir snúð.

Lífið samstarf

Gengst við dul­nefninu en vill samt ekki kannast við það

Rithöfundurinn Hermann Stefánsson virðist gangast við því að hafa skrifað glæpasöguna Páfagaukagarðinn sem kom út sumarið 2025 og var skrifuð undir dulnefninu Akörn. Glæpasagan er á lista yfir fyrr verk Hermanns í nýútkomnu skáldsögunni Sauðburði. Hermann kannaðist hins vegar ekki við að hafa sett verkið þar og vísaði á umbrotsmann sem vísaði á útgefanda sem vísaði aftur á Hermann.

Menning

Hálf­nakinn steggur hand­tekinn á Arnarhóli

Í síðasta þætti af Dagbók lögreglu vöktu nokkur atriði mikla athygli. Eitt þeirra mögulega meiri en önnur. Það kannast eflaust margir við það að sjá steggjunarhópa í alls kyns leikjum úti um alla borg. Stundum fara hlutirnir yfir strikið og það gerðist eitt sinn í Reykjavík.

Lífið

Noah Wyle sá kyn­þokka­fyllsti í heimi

Bandaríska tímaritið People hefur krýnt leikarann Noah Wyle sem kynþokkafyllsta mann í heimi. Leikarinn sló fyrst í gegn sem Dr. John Carter í læknaþáttunum ER og hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga í læknaþáttunum The Pitt á HBO MAX.

Lífið

Hætta við að hætta við að hætta við

Hollendingar munu ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári eftir allt saman. Þjóðin sniðgekk keppnina í fyrra og ætlaði að gera það aftur í ár þar til að talsmenn sjónvarpsstöðvarinnar NPO tilkynntu að þjóðin yrði með. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekkert verður af þátttökunni, Hollendingarnir eru þar með hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt í Eurovision.

Tónlist

Úlfurinn át þá alla

Í ævintýrinu um úlfinn og kiðlingana sjö étur úlfurinn krít til að gera röddina mjúka og tælandi, svo kiðlingarnir opni fyrir honum. Josh Homme, söngvari Queens of the Stone Age, virðist hafa gert hið sama áður en hann steig á svið í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið. Rödd hans var svo hlý og hljómfögur að hann hefði hæglega getað verið forsöngvari í kirkjukór.

Gagnrýni

Hvað veistu um… pitsur?

Pitsa, eða pizza, er einn vinsælasti réttur heims og á uppruna sinn á Ítalíu þar sem nútímapizzan tók á sig mynd á 18. og 19. öld.

Lífið