Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ. Neytendur 25.6.2026 12:40
Einungis sjö bílar kallaðir inn Eigendur Land Rover-bíla sem BL hefur innkallað vegna skipta á háspennurafhlöðu þurfa ekki að hætta að keyra bílana þar til þeir komast í viðgerð. Öruggt er að keyra þá en einungis sjö ökutæki er um að ræða. Neytendur 25.6.2026 12:03
Kaupmáttur heldur áfram að aukast Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 1,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ráðstöfunartekjur jukust um 6,4 prósent milli ára og vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent. Neytendur 25.6.2026 10:02
Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Mánaðarlega kvarta fjölmargir yfir því að fá tvær kröfur í heimabankann vegna kílómetragjaldsins. Yfirmaður þjónustulausna hjá Skattinum segir að í langflestum tilvikum sé ekki verið að tvírukka fólk. Neytendur 8.6.2026 08:00
Ölgerðin hækkar verðin Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent. Neytendur 5.6.2026 19:54
Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr. Neytendur 5.6.2026 19:22
Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Fyrstu Spar-verslanirnar verða opnaðar á laugardaginn við Barónsstíg í Reykjavík og Staðarberg í Hafnarfirði. Greint var frá því í febrúar að Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 yrðu Spar. Neytendur 3.6.2026 18:39
Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau. Neytendur 3.6.2026 14:15
Innkalla pipar vegna eiturs Eftir samráð við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur Dai Phat Asian Grocery innkallað vöruna Villta Sichuan-piparinn. Ástæðan er sú að varan inniheldur skordýraeitur yfir leyfilegu hámarksgildi. Neytendur 1.6.2026 11:42
Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað. Neytendur 24.5.2026 10:02
Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti af dælu virðist hafa skilað sér að fullu með lægra verðlagi hjá öllum hefðbundnu olíufélögunum. Undantekningin var Costco sem býður þó enn upp á ódýrasta eldsneytið. Neytendur 22.5.2026 15:07
Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Bónus í Skipholti er nú opið klukkutíma lengur en áður, til tíu að kvöldi. Tvær Bónus verslanir eru nú opnar svo lengi en framkvæmdastjóri Bónus segir lengri opnunartíma ekki skila sér út í verðlag. Ákvörðunin sé svar við kalli viðskiptavina. Neytendur 16.5.2026 08:38
Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum. Neytendur 15.5.2026 16:54
Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu að Isavia hafi gerst brotlegt við lög með því að hefja gjaldtöku í svokallaðri brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll. Neytendur 6.5.2026 17:05
Súperdósin snýr aftur Coca-Cola á Íslandi mun á næstu dögum hefja sölu á hinni vinsælu 500ml Coca-Cola dós, betur þekktri sem súperdósin. Í tilkynningu segir að endurkoma vörunnar komi í kjölfar mikils ákalls frá neytendum og viðskiptavinum undanfarin ár og nú sé komið til móts við þær óskir. Neytendur 6.5.2026 15:36
Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendastofa hefur bannað fræðslufyrirtækinu Akademias að nota heitið „Executive MBA“, í markaðs- og kynningarefni fyrirtækisins, þar sem aðeins háskólar geta boðið upp á meistaranám. Neytendur 4.5.2026 16:24
Löggan bankaði upp á á skírdag Sífleiri versla áfengi hjá netverslunum á Akureyri eftir að ÁTVR færði vínbúð bæjarins úr miðbænum á Norðurtorg í Þorpinu. Á skírdag lokaði lögreglan öllum afhendingarstöðum áfengis í bænum og kallar eigandi netverslunar eftir skýrari lagaramma. Neytendur 25.4.2026 15:30
„Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendasamtökin vöktu athygli á erfiðri stöðu fyrir viðgerðarþjónustu hér á landi í ályktun í gær. Þau segja þjónustuna í hættu og kalla eftir því að stjórnvöld felli niður virðisaukaskatt á viðgerðum. Neytendur 25.4.2026 13:48
Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Matvælastofnun innkallar tvær framleiðslulotur af Bónus Nautgripahakki frá Ferskum kjötvörum vegna gruns um salmonellu. Neytendur 21.4.2026 10:37
Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Ólíkt mörgum ríkjum í Evrópu gilda engar reglur hér á landi um það hvað brauð þurfi að uppfylla svo kalla megi það súrdeigsbrauð. Matarbloggari segir brauð með súr í ekki endilega súrdeigsbrauð. Neytendur 20.4.2026 21:00
Gjaldskylda sett á við Egilshöll Gjaldskylda verður sett á bílastæði við Egilshöllina til að stýra umferðinni betur á svæðinu. Fyrstu þrjár klukkustundirnar verða gjaldfrjálsar. Neytendur 18.4.2026 09:11
Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins, að því er fullyrt í tilkynningu frá félaginu. Neytendur 16.4.2026 10:33
Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að margt komi til greina til að draga úr verðbólgu, en ekki skattalækkanir; þær „vinni beinlínis gegn Seðlabankanum“. Hann telur að ríkið geti ekki eitt og sér lækkað verðbólgu í landinu. „Þjóðarsátt væri góð,“ segir hann. Neytendur 1.4.2026 00:08
Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Frá og með deginum í dag og fram yfir páska verður aðeins hægt að leggja bílum í almennum stæðum, á P3, við Keflavíkurflugvöll ef búið er að bóka stæði fyrir fram. Ekki er hægt að aka inn á bílastæðið nema bókun sé til staðar. Neytendur 27.3.2026 14:39