Viðskipti
239 240 241 242 243 244 245 246 247 … 334 ›
Tvöfalt fleiri hótelgistinætur en í fyrra Greiddum gistinóttum á öllum tegundum gististaða fjölgaði um 64 prósent í júní síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra. Þar af fjölgaði gistinóttum á hótelum um 108 prósent milli ára, um 62 prósent á gistiheimilum og um 37 prósent á öðrum tegundum skráðra gististaða á borð við tjaldsvæði og orlofshús. Viðskipti innlent 30.7.2021 10:12
Vesen á Snapchat Töluvert fjöldi notenda samfélagsmiðilsins Snapchat virðist hafa lent í vandræðum með að komast inn í smáforritið í gærkvöldi. Fyrirtækið segist hafa komist fyrir vandann, sem plagar þó suma notendur að einhverju leyti enn. Viðskipti erlent 30.7.2021 08:47
Örfáum án Covid-prófs vísað frá hjá Play í dag Örfáum hefur verið vísað frá flugi á vegum flugfélagsins Play í dag, þar sem þeir gátu hvorki sýnt fram á PCR-próf né antigen hraðpróf við Covid við innritun. Viðskipti innlent 29.7.2021 22:02
Svarta ekkjan í hart við Disney Leikkonan Scarlett Johansson hefur höfðað mál gegn Disney vegna dreifingar kvikmyndarinnar um Svörtu ekkjuna. Hún segir ákvörðun Disney að hafa birt myndina einnig á streymisveitunni Disney+ vera brot á samningi hennar við Marvel. Viðskipti erlent 29.7.2021 21:02
580 milljóna króna viðsnúningur hjá Valitor Hagnaður greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor nam 19,9 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2021. Um er að ræða tæplega 580 milljóna króna viðsnúning milli ára en félagið skilaði 560 milljóna króna tapi á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 29.7.2021 13:56
Íslandsbanki hagnast um 5,4 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi Birna Einarsdóttir, bankastjóri lýsir yfir mikilli ánægju með rekstrarniðurstöðuna sem samsvarar 11,6% arðsemi á ársgrundvelli. Viðskipti innlent 28.7.2021 16:17
Arion hagnaðist um tæpa átta milljarða Hagnaður Arion banka nam 7,8 miljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Afkoman er betri á öllum sviðum bankans sé miðað við sama ársfjórðung á síðasta ári. Viðskipti innlent 28.7.2021 15:43
Björn Ingi hlýtur ekki náð fyrir augum Hæstaréttar Hæstiréttur hefur hafnað því að taka fyrir mál fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar gegn þrótabúi Pressunnar ehf. Björn Ingi hafði óskað eftir málskotsleyfi eftir að Landsréttur dæmdi hann til að greiða 80 milljóna skuld til þrotabúsins. Viðskipti innlent 28.7.2021 13:43
Kvikmyndaframleiðandi ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins Kvikmyndaframleiðandinn Skúli Malmquist hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins. Skúli tekur við keflinu af Hlyni Páli Pálssyni þann 1. september næstkomandi. Viðskipti 28.7.2021 13:16
„Við erum ekki landamæraeftirlit“ Þeir sem ekki geta framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi við byrðingu í flug með flugfélaginu Play, verður ekki hleypt um borð á leið til Íslands. Forstjóri félagsins segir ákvörðunina innan lagalegs ramma enda sinni flugfélagið ekki landamæraeftirliti. Viðskipti innlent 28.7.2021 12:41
Kostnaður við snjallmælavæðingu Veitna áætlaður 5,7 milljarða króna Áætlaður kostnaður Veitna við snjallvæðingu mæla er 5,7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari Veitna við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, áheyrnafulltrúa Miðflokksins í borgarráði. Viðskipti innlent 28.7.2021 08:05
Fjórða bylgjan og óttinn við að missa vinnuna Nú þegar fjórða bylgjan er hafin er ekki laust við að gamalkunnur Covid-hnútur geri vart við sig hjá sumum: Mun ég missa starfið mitt? Hvernig mun vinnustaðnum mínum reiða af? Verður mér sagt upp um næstu mánaðamót? Eða í haust eða vetur? Atvinnulíf 28.7.2021 07:01
Apple hagnaðist um 2,7 billjónir króna Nýtt ársjórðungsuppgjör tæknirisans Apple, verðmætasta fyrirtækis heims, fór töluvert fram úr væntingum fjárfesta. Tekjur voru mun hærri en talið var og jukust um meira en þriðjung á milli ára. Þá jókst sala iPhone-síma um nærri því helming. Viðskipti erlent 27.7.2021 22:06
Að forðast baktalið í vinnunni Við tökum öll þátt í kjaftagangi einstaka sinnum. Heyrum einhverja djúsí kjaftasögu og berum hana á milli. Eða veltum okkur upp úr henni. Þetta er mannlegt og í raun þarf enginn að skammast sín því rannsóknir hafa sýnt að smá kjaftagangur er flestum eðlislægur. Þó ekki nema stundum í góðra vina hópi. Atvinnulíf 26.7.2021 07:01
Afturkalla kyrrsetningarbeiðnir vegna uppbyggingar á Kirkjusandi Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) og 105 Miðborg slhf. hafa náð samkomulagi um að afturkalla kyrrsetningarbeiðnir gagnvart hvort öðru og að uppgjöri vegna ágreiningsmála þeirra verði lokið með hefðbundnum hætti fyrir dómstólum. Viðskipti innlent 25.7.2021 23:16
Hyggst sniðganga Play eftir erfiða reynslu sona sinna Leikstjórinn og handritshöfundurinn Ragnar Bragason ber flugfélaginu Play ekki vel söguna og hyggst sniðganga félagið eftir að ungum sonum hans var meinað að fara um borð í vél þess til Kaupmannahafnar í dag. Að sögn Play var um mannleg mistök að ræða. Viðskipti innlent 25.7.2021 22:40
Ben & Jerry's hættir sölu á landtökusvæðum Ísraela Ísframleiðandinn Ben & Jerry's hyggst hætta sölu á landtökusvæðum Ísraela á Vesturbakkanum og í austurhluta Jerúsalem. Forsætisráðherra Ísraels segist ætla bregðast við sölubanninu með hörðum aðgerðum. Viðskipti 24.7.2021 13:41
„Þessar aðgerðir leggjast bara mjög illa í okkur“ Fjármála- og efnahagsráðherra telur enn ótímabært að segja að efnahagslegt bakslag muni hljótast af nýjum sóttvarnaaðgerðum. Veitingamenn og kráareigendur eru ósáttir að gripið hafi verið til nýrra aðgerða. Það sé mikið högg fyrir reksturinn. Viðskipti innlent 24.7.2021 13:30
Samþykktu hlutafjáraukningu og fulltrúi Bain komin í stjórn Hluthafafundur Icelandair Group samþykkti í dag hlutafjáraukningu í tengslum við kaup bandaríska fjárfestingasjóðsins Bain Capital í félaginu. Fulltrúi sjóðsins kemur inn í stjórn og Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður, stígur til hliðar. Viðskipti innlent 23.7.2021 17:13
Innkalla forsteikt smælki með rósmarín Hollt og Gott ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafa innkallað forsteikt smælki með rósmarín. Neytendur 23.7.2021 13:06
Seðlabankinn í snúinni stöðu Seðlabankinn er í snúinni stöðu að mati hagfræðings í greiningardeild Íslandsbanka. Verðbólgan er ekki að hjaðna eins hratt og vonast var til en á sama eru hærri vextir, sem væru líklegastir til að vinna almennilega á henni, ekki endilega ákjósanlegir í bágu efnahagsástandinu sem nú ríkir. Viðskipti innlent 23.7.2021 12:14
Neysla Íslendinga meiri en fyrir Covid-19 faraldurinn Samanlögð kortavelta Íslendinga innanlands og erlendis var 8% meiri í júní í ár en í fyrra, miðað við fast verðlag og gengi. Þá var hún 9% meiri en í júní árið 2019. Neysla mælist því meiri en hún var fyrir faraldurinn en fer í auknum mæli fram innanlands vegna færri ferðalaga til útlanda. Viðskipti innlent 23.7.2021 10:28
Verðbólga mælist 4,3 prósent Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,3% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,4%. Ársverðbólga mælist því 4,3% í júlí og stendur í stað milli mánaða. Verðbólga mældist 4,4% í maí og 4,6% í apríl en þá hafði hún ekki verið hærri í átta ár. Viðskipti innlent 23.7.2021 09:48
Alls konar markmið í vinnunni en sömu góðu ráðin Áskoranirnar í vinnunni okkar eru af öllum toga. Allt frá því að vera stórtæk og snúa að starfsframanum okkar, eða bara lítil og góð þar sem okkur langar sjálfum til að bæta okkur í einhverju. Til dæmis að brosa oftar. Eða mæta alltaf á réttum tíma. Atvinnulíf 23.7.2021 07:00
Smeykir við það sem leynist í minnisblaði Þórólfs Eigendur skemmtistaða og kráa í miðbæ Reykjavíkur eru smeykir við það hvaða tillögur sóttvarnalæknir hyggst leggja til að taki gildi svo stemma megi stigu við þá nýju bylgju sem nú er farin af stað í kórónuveirufaraldrinum. Viðskipti innlent 22.7.2021 20:00
Icelandair tapaði 6,9 milljörðum en lausafjárstaða styrkist verulega Icelandair tapaði 6,9 milljörðum á öðrum ársfjórðungi ársins samanborið við 11,4 milljarða tap á sama tíma í fyrra. Forstjóri félagsins segir viðspyrnu félagsins hafna en lausafjárstaða Icelandair styrktist verulega vegna mikillar aukningar í bókunum á flugi á seinni helmingi ársins. Viðskipti innlent 22.7.2021 19:07
Kylfingar keppa um golfferð til Portúgal Enn er hægt að taka þátt í Meistaramótinu í Betri bolta og freista þess að vinna sæti á lokamótinu en sigurlið lokamótsins fær ferð til Portúgal. Samstarf 22.7.2021 14:30
Hraðhleðslustöðvar settar upp við verslanir Samkaupa Samkaup hefur opnað fyrstu rafhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi. Fyrirtækið gerði fyrr á árinu samning við Írosku og mun bjóða upp á rafhleðslustöðvar við verslanir sínar um land allt. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:34
Landsbankinn hagnast um 14,1 milljarð króna Landsbankinn hagnaðist um 6,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2021 og var afkoma bankans jákvæð um 14,1 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar var 3,3 milljarða króna tap á sama tímabili árið 2020. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:23
Metpantanir hjá Marel á öðrum ársfjórðungi Annan ársfjórðung í röð var slegið met í pöntunum hjá Marel en pantanirnar á fjórðunginum voru upp á 370 milljónir evra. „Annar ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Okkar metnaðarfulla teymi tókst á við áskoranir með bjartsýni og þrautseigju í nánu samstarfi við birgja og viðskiptavini.“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í tilkynningu um ársfjórðungsuppgjör. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:10