Frumvarp úrskurðað þinglegt 7. júlí 2004 00:01
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, úrskurðaði í morgun að nýja fjölmiðlafrumvarpið væri þinglegt. Stjórnarandstaðan lýsti sig algerlega ósammála niðurstöðunni við upphaf þingfundar, bæði að efni og formi til. Harðar umræður urðu um úrskurðinn með hlátrasköllum. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði frumvarpið ótækt, óþinglegt og að í því fælist stjórnskipulegur óskapnaður. Hann sagði að í frumvarpinu væri fólgin fyrirætlun um að fara á svig við stjórnarskrána; að hafa af þjóðinni stjórnarskrábundinn rétt til að kjósa um lagafrumvarp sem forseti hefur synjað staðfestingar. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði stjórnarandstöðuna m.a. hafa lýst því yfir að æskilegt væri að afnema þessi lög og það væri það sem nú væri verið að gera. Þá kváðu við hlátrasköll í þingsalnum frá þingmönnum stjórnarandstöðu. Halldór sagði að síðan væri verið að flytja annað frumvarp þar sem væru tvær mjög veigamiklar breytingar. Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, spurði hvort hlátrasköll stjórnarandstöðunnar, sem og mannabreytingar í allsherjarnefnd, bæru vitni um það að hún ætli ekki að vinna efnislega að málinu í þinginu og standa þess í stað í endalausum upphlaupum. Hægt er að horfa á fréttina og brot úr ræðum þingmanna með því að smella á hlekkinn sem fylgir fréttinni í fréttayfirlitinu.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Erlent Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Erlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Fleiri fréttir „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjá meira