Innlent

Stjórnarandstaðan krefst fundar

Stjórnarandstaðan krefst þess að allsherjarnefnd Alþingis komi aftur saman í dag en fundi nefndarinnar var óvænt slitið um hádegið í gær og hefur nýr fundur ekki verið boðaður fyrr en á mánudag. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna segja að formenn stjórnarflokkanna hafi ekki komið sér saman um afdrif fjölmiðlafrumvarpsins og því hafi stjórnarliðar í allsherjarnefnd ákveðið að fresta umræðum í nefndinni. Formaður nefndarinnar, Bjari Benediktsson, hafnar þessu. Formenn stjórnarflokkanna ætla að freista þess að ná sátt í málinu um helgina en þeir segja stjórnarsamstarfið ekki í hættu. Þó er ljóst að enn er mikill ágreiningur á milli flokkanna þar sem fjöldi framsóknarmanna vill að fjölmiðlafrumvarpið verði dregið til baka en sjálfstæðismenn hafa ekki ljáð máls á því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×