Erlent

Siniscalco settur ráðherra

Domenico Siniscalco mun verða settur efnahags- og viðskiptaráðherra Ítalíu í dag að því er Reuters-fréttastofan hefur eftir heimildarmönnum sínum innan ítölsku stjórnarinnar. Enginn hefur gegnt embættinu síðan í byrjun júlí þegar Giulio Tremonti var neyddur til að segja af sér í kjölfar deilna hans og forsætisráðherrans, Silvio Berlusconis. Siniscalco er ekki í neinum stjórnmálaflokki en hefur unnið náið með Tremonti sl. þrjú ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×