Innlent

Stuðningur í Reykjavík norður

Framsóknarmenn í Reykjavíkurkjördæmi norður lýsa yfir fullum stuðningi við formann flokksins og þingflokk í fjölmiðlamálinu. Í ályktun frá stjórnum Kjördæmissambandsins, Félags framsóknarmanna og Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík norður segir að umræðan hafi því miður fyrst og fremst snúist um túlkunaratriði stjórnarskrárinnar og valdsvið forseta en ekki um hið raunverulega innihald frumvarpsins. Málið sé ekki það stórt að það gefi tilefni til að spilla fyrir árangursríku stjórnarsamstarfi. Stjórnir félaganna treysta því að forysta flokksins nái að leiða þetta mál til lykta á farsælan hátt, þjóðinni til heilla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×