Fella lögin úr gildi 18. júlí 2004 00:01
Framsóknarmenn sjá þá einu lausn í fjölmiðlamálinu að fella lögin úr gildi. Allsherjarnefnd kemur saman til fundar klukkan tíu í fyrramálið. Samkvæmt heimildum Stöðvar 2 ætluðu Davíð og Halldór að ræðast við í síma í dag og er tóninn þannig í framsóknarmönnum að eina lausnin sé að fella lögin úr gildi. Þá er bæði komið í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og þann möguleika að forsetinn synji líka nýja fjölmiðlafrumvarpinu. Davíð Oddsson var í veiði um helgina í Laxá í Leirársveit. Halldór Ásgrímsson hefur verið á heimaslóðum fyrir austan en Davíð hafði á orði fyrir helgina að Halldór þyrfti tíma vegna andláts móður sinnar. Jarðarförin fer fram á miðvikudaginn og því ljóst að Halldór stoppar ekki lengi í bænum. Líklegt er því að þeir hittist á morgun. Framsóknar- og sjálfstæðismenn sem Stöð 2 hefur rætt við um helgina hafa sagt nokkurn veginn það sama: að verið sé að vinna í málinu. Framsóknarmenn tala um lausn en sjálfstæðismenn tala um að tíma þurfi til að skoða jafn veigamikla hluti sem snerti m.a. stjórnarskrá landsins. Margir voru á faraldsfæti en þó ítrekuðu nokkrir við fréttamann að það útilokaði ekki að menn gætu verið í sambandi og unnið í málinu. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt forsætisráðherra fyrir afskipti af störfum allsherjarnefndar og telur að verið sé að tefja málið. Hvað sem gerist á fundi allsherjarnefndar á morgun hefur orðið alger viðsnúningur frá því sem var fyrr í sumar. Nú liggur þingmönnum stjórnarandstöðunnar lífið á en ekki þingmönnum stjórnarinnar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Erlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Erlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fleiri fréttir „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjá meira