Hallgrímur fer frá Kabúl 3. nóvember 2004 00:01
Davíðs Oddsson sagði í gær að Hallgrímur Sigurðsson væri að hætta sem yfirmaður friðargæslunnar á alþjóðaflugvellinum í Kabúl. Þetta kom fram í utandagskrárumræðu um árásir á íslenska starfsmenn utanríkisþjónustunnar í Kabúl, sem fram fór að ósk Ögmundar Jónassonar. Davíð sagði að það hefði verið farið ítarlega yfir atburðina, aðdraganda og aðstæður. Eftir það hefði verið ákveðið að flýta yfirmannaskiptum sem fram eiga að fara. Þann 10. nóvember mun nýr yfirmaður fara til Kabúl til að endurskoða starfsemina á flugvellinum og að henni lokinni mun hann taka við starfi Hallgríms. Ögmundur sagði í ræðu sinni að íhugandi væri hvort það að senda friðargæsluliða til starfa í Kabúl bryti gegn almennum hegningalögum, en samkvæmt þeim getur hver sá sem ræður menn til herþjónustu sætt fangelsisvist í allt að tvö ár. Ljóst væri að friðargæsluliðarnir hefðu fengið herþjálfun, þeir bæru vopn og titla og væru því hermenn. Þessu andmælti Davíð, sem sagði þá vinna borgarlega störf og þrátt fyrir að þeir hafi fengið örskamma þjálfun í beitingu vopna væru þeir ekki hermenn. Hann viðurkenndi þó að íslenskir friðargæsluliðar hafi réttarstöðu hermanna innan NATÓ.
Alþingi Fréttir Innlent Mest lesið Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Erlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Innlent Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Innlent Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Innlent Lögreglan bannaði bjór á B5 Innlent Fleiri fréttir Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Lögreglan bannaði bjór á B5 Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Bein útsending: Sigmundur kynnir innihaldið Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða Ætla ekki að slíta viðræðum Engin ákvörðun um hvalveiðar og maurasýrumengun á Bíldudal Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Helmingi þætti óeðlilegt ef Bjarni gæfi út hvalveiðileyfi Þúsund lítrar af sýru láku á Bíldudal Ríkisstjórnin bjó sjálf til flóttamannavandamál Tveir handteknir eftir hópslagsmál Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum Sakar Snorra um að tendra bál fordóma Nýju húsnæði Myndlistaskólans lokað Ísland meðal Evrópulanda þar sem lyfjatengd andlát eru hlutfallslega flest Nánast engin læknisþjónusta ef til verkfalls kemur Mikill eldur í iðnaðarhúsnæði á Akureyri Lyfjatengd andlát, rauð Bandaríki og glimmerveisla í Eldborg Tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla Óvíst hvort umsókn um hvalveiðileyfi verði afgreidd fyrir kosningar Sjá meira