Erlent

Júsjenko útnefnir forsætisráðherra

Viktor Júsjenko, nýkjörinn forseti Úkraínu, hefur útnefnt Juliu Tymoschenko sem forsætisráðherra landsins. Þingið í Úkraínu verður að samþykkja val Júsjenkos áður en forsætisráðherrann getur formlega tekið til starfa. Júsjenko er nú kominn til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, þar sem hann mun funda með Vladimír Pútín og öðrum ráðamönnum landsins næstu daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×