Erlent

Stjórnarskipan frestað í Úkraínu

Þingumræðum um skipan nýrrar ríkisstjórnar Úkraínu hefur verið frestað að ósk hins nýja forseta landsins, Viktors Júsjenko. Hann átti að tilkynna ráðherratilnefningar sínar í dag en að sögn talsmanns úkraínska þingsins bað Júsjenko, sem legið hefur sveittur yfir málinu nú í vikutíma, um lengri frest til stjórnarmyndunarinnar. Ekki er víst hvenær niðurstöðu er að vænta en það gæti þó orðið á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×