Erlent

Fyrsta hluta brottflutnings lokið

Sýrlendingar hafa lokið fyrsta hluta brottflutnings frá Líbanon. Sýrlenskar hersveitir og leyniþjónustufólk er nú komið til austurhluta Líbanons, skammt frá landamærunum að Sýrlandi, og stór hluti yfir landamærin. Þar með hefur einni kröfu Bandaríkjanna og líbansks almennings verið mætt en seinni hluti felst í algjöru brotthvarfi Sýrlendinga frá Líbanon.  Hizbollah-samtök herskárra sjíta neita hins vegar að leggja niður vopn en samtökin njóta meðal annars stuðnings stjórnvalda í Damaskus.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×