Erlent

Stjórnarandstaðan tekin við völdum

Stjórnarandstaðan í Kirgistan hefur tilnefnt nýjan forseta og virðist hafa tekið við stjórnartaumunum um allt land. Stjórnarbylting var gerð í Kirgistan í gær þegar andstæðingar forsetans risu upp í miklum mótmælum og hrifsuðu völdin. Ekki er vitað hvar forsetinn fyrrverandi heldur sig en hann virðist hafa flúið land með fjölskyldu sinni. Pútín Rússlandsforseti lýsti því yfir fyrir stundu að hann myndi veita forsetanum hæli ef hann leitaði til Rússlands. Ofbeldisalda fylgdi valdaskiptunum; þrír létust í átökum í nótt, byggingar voru brenndar og ræningjar og þjófar léku lausum hala. Svo virðist sem aðstæður hafi batnað til muna og í dag er allt með kyrrum kjörum í höfuðborginni, Bishkek.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×