Erlent

Annan segir ekki af sér

Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir það ekki koma til greina að hann segi af sér vegna gagnrýni sem fram kemur í nýrri rannsóknarskýrslu um olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak. Annan segir að skýrslan sé þvert á móti mikill léttir fyrir sig, enda segi í henni að ekki liggi fyrir neinar sannanir um að hann hafi vitað að svissneskt fyrirtæki, sem sonur hans þáði laun hjá, sæktist eftir verkefnasamningum í tengslum við áætlunina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×