Erlent

Búist við stórsigri Mugabes

Þingkosningar í Afríkuríkinu Zimbabwe hófust í morgun. Fastlega er búist við að flokkur Roberts Mugabe, forseta landsins, vinni stórsigur í kosningunum. Mannréttindasamtök víða um heim segja að kosningarnar geti ómögulega orðið heiðarlegar eins og ástatt sé fyrir landinu nú. Sögusagnir eru á kreiki um að mörg hundruð þúsund manns sem ekki séu á lífi hafi verið skráðir sem kjósendur. Búist er við að fyrstu tölur liggi fyrir á laugardagsmorgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×