Innlent

Össur opnar starfsstöð í dag

Stuðningsmenn Össurar Skarphéðinssonar formanns Samfylkingarinnar ætla að opna starfsstöð að Ármúla 40 klukkan þrjú í dag. Össur mun af því tilefni kynna helstu baráttumál sín en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur sem kunnugt er boðið sig fram í formannsembættið gegn honum. Ingibjörg hefur þegar opnað kosningaskrifstofu en líklega þykir sitjandi formanni betra að kalla sína skrifstofu starfsstöð. Kaffi og pönnukökur verða í boði og létt tónlist leikin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×