Erlent

Berlusconi beið afhroð

Flokkur Silvio Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, beið afhroð í sveitastjórnarkosningum sem fram fóru á Ítalíu í gær. Berlusconi tapaði í ellefu af þrettán héruðum en bandalag miðju- og vinstrimanna, undir stjórn Romano Prodis, vann stórsigur. Þrátt fyrir andlát páfa náði kosningaþátttaka rúmlega sjötíu prósentum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×