Erlent

Rúmenía og Búlgaría í ESB

Rúmenía og Búlgaría munu verða fullgildir meðlimir Evrópusambandsins 1. janúar árið 2007, ef allt gengur eftir. Evrópuþingið samþykkti þetta í dag. Löndin verða þó að taka sig á í efnahagsstjórnun og ekki síður að vinna á spillingu innan stjórnkerfisins. Aðildarlönd Evrópusambandsins verða þá orðin tuttugu og sjö.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×