Erlent

Chirac reynir að sannfæra Frakka

Jacques Chirac Frakklandsforseti mun í kvöld taka þátt í sjónvarpskappræðum með áttatíu frönskum ungmennum þar sem fjallað verður um stjórnarskrá Evrópusambandsins. Chirac mun reyna að koma þeim skilaboðum til þjóðarinnar að hún verði að samþykkja stjórnarskrána í lok maí. Andstæðingar stjórnarskrárinnar hafa fengið mikinn byr í seglin undanfarið og þrettán skoðanakannanir í röð benda til þess að stjórnarskránni verði hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. maí.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×