Innlent

Hafi erindi sem erfiði

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist vona að Agnes Bragadóttir og félagar hennar í átaki til að koma saman hópi lítilla fjárfesta til að kaupa hlut í Símanum hafi erindi sem erfiði. Hann furðar sig hins vegar á því að hún geri Alþingi að blóraböggli. "Alþingi hefur ekki lagt neinn stein í götu hennar og félaga hennar til að vinna að markmiðum sínum, þvert á móti geta þau unnið að þessu hugðarefni sínu innan ramma laga og þeirra reglna, sem gilda um sölu Símans," segir Björn í grein á vef sínum, bjorn.is.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×