Erlent

Vill ekki dauðadóm yfir Saddam

Hinn nýi forseti Íraks, Jalal Talabani, sagði í útvarpsviðtali í dag að hann myndi neita að undirrita dauðadóm yfir Saddam Hussein, ef hann yrði fundinn sekur um stríðsglæpi. Talabani, sem er Kúrdi, sagðist andvígur dauðarefsingu. Hins vegar væri þess að gæta að þrír menn væru í forsæti í Írak, hann og tveir varaforsetar. Hann gæti þess vegna sjálfur farið í frí og látið hina tvo um að ákveða örlög forsetans fyrrverandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×