Erlent

Ítalska stjórnin heldur velli

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur tekist að koma í veg fyrir fall ríkisstjórnar sinnar. Hann hafði sagt að ef Flokkur kristilegra demókrata, sem sagði sig úr ríkisstjórninni fyrir skemmstu, kæmi ekki aftur þá myndi hann rjúfa þing og boða til kosninga. Kristilegu demókratarnir hafa sæst á að taka sæti í stjórninni á ný en eftir er að tilkynna hvort, og þá hvaða, breytingar verða á ráðherraliðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×