Erlent

Persson skóflar í sig osti

Göran Persson, leiðtogi sænska Verkamannaflokksins, segist skófla í sig osti þegar hann er stressaður. Hann viðurkennir að borða mikinn ost þessa dagana því skoðanakannanir sýna að fylgi flokksins dalar stöðugt. Mikið ostát er sagt valda martröðum en Persson, sem hefur verið forsætisráðherra Svíþjóðar í níu ár, segist hvorki láta ostinn né ótta við að tapa næstu kosningum ræna hann nætursvefni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×