Erlent

Út á hvað gengur stjórnarskrá ESB?

Út á hvað gengur þessi umdeilda stjórnarskrá Evrópusambandsins sem virðist vekja hörð viðbrögð um alla álfuna? Fréttamaður Stöðvar 2 rýndi í skjalið og skýrir málið. Evrópusambandið var upphaflega bandalag sex ríkja og stjórnkerfi þess er arfleiðs þess tíma. Nú er það samband tuttugu og fimm ríkja og 450 milljóna íbúa og því er nauðsynlegt að gera breytingar. Margir íbúar sambandsins óttast að þetta þýði skref í áttina að sambandsríki, en því er hafnað í Brüssel. Raunar er stjórnarskráin, sem kynnt var fyrir ári, málamiðlum á milli þeirra sem vilja stíga skref í átt að sambandsríki og þeirra sem vilja halda sjálfsstjórn. Í henni er steypt saman fjöldamörgum sáttmálum og samningum sem þegar eru í gildi í þeim tilgangi að auka gegnsæi, efla stofnanir og festa í sessi þau gildi sem Evrópusambandið á að standa fyrir. Framvegis dugir til að mynda meirihluti atkvæða til að fá atriði samþykkt en þó með þeim fyrirvara að meirihlutinn verður að vera 55 prósent af þeim sem sitja í ráðherraráðinu, ekki færri en fimmtán ráðherrar, og þeir verða að vera fulltrúar í það minnsta 65 prósenta íbúa sambandsins. Verði stjórnarskráin samþykkt bætast við embætti forseta Evrópusambandsins, en sem stendur er því embætti skipt á milli aðildarríkjanna á hálfs árs fresti, og utanríkisráðherra kæmi til. Nú þegar er til fáni, þjóðsöngur og umfangsmikil embættismannastétt og þykir ýmsum þetta minna mjög á þjóðríki. Því er heldur ekki neitað að stjórnarskráin eykur á miðstýringuna - embættismannaveldið í Brüssel fær meira að gera. Það er þó ekki hræðslan við skrifræðisbáknið í Brüssel sem hræðir íbúa þeirra landa þar sem efinn er sem mestur: Frakkar vilja refsa Chirac forseta fyrir stefnu hans og finnst að auki sem efnahagsmál fái angló-saxneskan blæ í stjórnarskránni. Í Hollandi er það óttinn við innflytjendavanda sem eykur andstöðuna. Bretar eru einnig fullir efasemda en felli Holland og Frakkland stjórnarskrána er talið víst að Tony Blair sjái ekki tilgang í þjóðaratkvæðagreiðslu og að stjórnarskráin sé í raun og veru andvana fædd.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×