Ekki áhrif á stækkun ESB 30. maí 2005 00:01
Talsmaður Evrópusambandsins segir að framkvæmdastjórnin vilji ekki að fall stjórnarskrár sambandsins í kosningunum í Frakklandi í gær hafi áhrif á stækkun þess. Að stjórnarskráin skyldi felld í Frakklandi er gríðarlegt áfall fyrir sambandið, sem og ríkisstjórn Jacques Chiracs forseta. Menn velta því eðlilega fyrir sér afleiðingunum, bæði fyrir sambandið sjálft og frönsku ríkisstjórnina. Meðal annars hafa verið vangaveltur um að aðildarviðræður við Tyrkland, sem eiga að hefjast 3. október næstkomandi, renni út í sandinn. Það er hins vegar ekki vilji framkvæmdastjórnarinnar að svo fari. Francoia Le Beil, talsmaður hennar, sagði í dag að samþykkt stjórnarskrárinnar og stækkunarferli sambandsins séu tvö óskyld mál sem ekki eigi að hafa áhrif hvort á annað. Margar ástæður eru tíndar til fyrir því að Frakkar felldu stjórnarskrána í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ein sú helsta er þó sögð sú að þeir hafi verið að refsa ríkisstjórninni fyrir mikið atvinnuleysi sem er yfir tíu prósent. Jacques Chirac forseti virðist þó ekki ætla að taka þetta sem vísbendingu um að hans tími sé liðinn því hann tekur ekki í mál að segja af sér. Hins vegar hefur hann gefið í skyn að hann kunni að reka Jean-Pierre Raffarin forsætisráðherra.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Erlent Segir Heimildarmenn hafa njósnað um son hans Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Innlent Allt að tuttugu stiga hiti Veður Nýtt myndefni: Sparkað í blóðmerar á íslenskum sveitarbæ Innlent Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Innlent Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Innlent Fleiri fréttir Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Sjá meira