Innlent

35 teknir fyrir hraðakstur

MYND/Vísir
Þrjátíu og fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Þar af voru þrjátíu og þrír teknir innanbæjar. Einn ökumaður ók á 107 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukkustund og annar á 127 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70. Þessir tveir mega búast við að verða sviptir ökuleyfi. Um níuleytið var ekið á gangandi vegfaranda á Glerárgötunni en hann virðist hafa sloppið með fótbrot. Lögreglan telur mögulegt að skýra megi tilhneigingu ökumanna til að stíga of fast á bensíngjöfina með hátíðinni „Bíladögum“ sem lauk í bænum í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×