Innlent

Maður dæmdur fyrir skjalafals

Fertugur maður hlaut í gær sex mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að falsa áritun þrítugrar konu á skuldabréf sem hann notaði til að kaupa bíl á bílasölu í Reykjavík. Bréfið var gefið út í júní 2001 og konan óafvitandi komin í ábyrgð fyrir rúmar 1,3 milljónir króna. Ákæra var gefin út á hendur manninum í apríl síðastliðnum, en hann játaði fyrir dómi. Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir þjófnaði og til sektargreiðslna vegna fíkniefnabrots. Þrír mánuðir dómsins voru skilorðsbundnir til þriggja ára.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×