Innlent

Upplýsingar um rán í gagnabanka

Upplýsingar um rán framin á Íslandi síðustu 5 ár verða settar í sérstakan gagnabanka hjá Ríkislögreglustjóra sem mun nýtast við rannsókn ránsmála. 36 rán eru framin á ári hverju og hefur það haldist stöðugt um fimm ára skeið samkvæmt nýrri úttekt á ránum á Íslandi. Embætti Ríkislögreglustjóra fagnar úttektinni og segir hana nýtast í forvarnaskyni. Rannveig Þórisdóttir, félagsfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra, segir að fyrst og fremst sé mjög mikilvægt að fá staðfestingu á því að brotunum fjölgi ekki heldur breytist eðli þeirra. Þá skipti upplýsingarnar miklu máli vegna forvarnagildis og rannsóknar mála. Lögreglan mun nýta sér upplýsingarnar með margvíslegum hætti. Ránin hafa verið framin víðs vegar um Reykjavík á síðustu fimm árum en flest rán sem framin eru á opnum svæðum eiga sér stað í miðbænum. Banka- og pítsusendlarán eru oftar framin í úthverfum en í miðbænum. Rannveig segir að upplýsingarnar hafi meðal annars verið sendar til lögreglustjóra sem geti vonandi nýtt sér þær. Þá verði einnig kannað hvernig nýta megi upplýsingarnar og athugað hvaða aðstæður virðist auka líkur á að brot eigi sér stað. Rannveig segir að skoðað verði hvort sérstakur hópur verði settur á fót innan lögreglunnar til að fari yfir þessi mál. Í þeirri vinnu felist líka að búinn verði til gagnagrunnur um rán á Íslandi sem auðvelt verði að uppfæra þannig að hægt sé að fá upplýsingar með reglubundnari hætti en áður. Þegar rán verði framið sé hægt að fara í gagnabankann en upplýsingar úr ráninu verði einnig færðar inn í hann. Vinnan snúist um að skoða mynstur og kanna hvað megi nýta í upplýsingunum til að koma í veg fyrir frekari brot.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×