Innlent

Fellt í Vestur-Barðastrandarsýslu

Ekkert verður af sameiningu Tálknafjarðar og Vesturbyggðar í eitt sveitarfélag. Þetta er ljóst eftir að íbúar beggja sveitarfélaga höfnuðu sameiningartillögunni. 72 prósent kjósenda í Tálknafirði höfnuðu sameiningu og 58 prósent kjósenda í Vesturbyggð. Kjörsókn var mismunandi í sveitarfélögunum. 58 prósent atkvæðabærra manna og kvenna greiddu atkvæði á Tálknafirði en 35 prósent í Vesturbyggð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×