Innlent

Eggert sækist eftir 7. sæti

Eggert Páll Ólason, héraðsdómslögmaður og formaður samtakanna Vinir einkabílsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í sjöunda sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor. Í tilkynningu frá Eggerti kemur fram að hann leggi mikla áherslu á bættar samgöngur innan borgarinnar og vilji tryggja greiðari umferð einkabíla í Reykjavík. Þá telur hann mikilvægt að lækka útsvar á borgarbúa umtalsvert á næsta kjörtímabili og auka valfrelsi borgarbúa, ekki síst í leikskóla- og grunnskólamálum. Jafnframt telur Eggert brýnt að bæta hag og aðstöðu aldraðra í borginni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×