Innlent

Níu konur í miðstjórn

Kosningu í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins sem fram fór á landsfundi í Laugardalshöll er lokið, en alls börðust 24 um ellefu sæti í stjórninni. Alls voru níu konur kjörnar í miðstjórnina og tveir karlar, en það eru Birna Lárusdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Elínbjörg Magnúsdóttir, Grímur Gíslason, Magni Kristjánsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Björk Guðjónsdóttir, Helga Þorbergsdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Sigríður Ásthildur Andersen. Nú klukkan þrjú hefst kosning til formanns og varaformanns. Geir H. Haarde utanríkisráðherra hefur einn boðið sig fram til formanns en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, berjast um varaformannsembættið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×