Innlent

Alfreð hættur í stjórnmálum

Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn í áratugi og núverandi formaður Orkuveitu Reykjavíkur, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum næsta vor. Það verða því leiðtogaskipti hjá flokknum í borginni í borgarstjórnarkosningunum næsta vor. Alfreð hefur verið skipaður formaður nýrrar framkvæmdanefndar um byggingu nýs Landsspítala. Framkvæmdanefndin mun hafa yfirumsjón með undirbúningi framkvæmda og mannvirkjagerð á lóð Landspítalans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×