Innlent

Vandi heimilislausra ræddur á Alþingi í dag

Um fimmtíu manns eru heimilislausir á Íslandi, samkvæmt nýrri skýrslu sem félagsmálráðherra kynnti á Alþingi í morgun. Félagsmálaráðherra segir lausn vera í sjónmáli fyrir um tuttugu hinna heimilislausu, og að unnið sé að lausn alls vandans. Umræðan á Alþingi í morgun spannst um málið í kjölfar fyrirspurnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún var ekki sátt við svör ráðherrans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×