Innlent

Auðlindafrumvarp ráðherra þvert á niðurstöður nefndar

Frumvarp iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum jarðar gengur þvert á niðurstöður auðlindanefndar, sem Davíð Oddsson skipaði á sínum tíma. Meginniðurstöður þeirrar nefndar voru að jafnræði ætti að ríkja við úthlutun og að greiða þyrfti gjald fyrir afnotin.

Samkvæmt nýju frumvarpi iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu geta fyrirtækið sótt um rannsóknarleyfi og fengið sjálfkrafa rétt til að nýta auðlindina leiði rannsóknirnar til einhverrar niðurstöðu. Ekki er gert ráð fyrir að nein greiðsla komi fyrir. Réttinn er hins vegar hægt að selja með sérstöku leyfi ráðherra.

Lokaskýrsla auðlindanefndarinnar kom út árið 2000 en nefndin var skipuð af Alþingi starfaði í þrjú ár. Niðurstöður hennar voru þverpólitísk samstaða allra flokka um hvernig standa ætti að málum í framtíðinni til að forðast sams konar deilur og óeiningu sem hafðí verið um kvótakerfið í sjávarútvegi.

Eiríkur Tómasson lagaprófessor var varaformaður auðlindanefndarinnar. Hann segir aðspurður hvort frumvarpið gangi ekki þvert á niðurstöður auðlindanefndar að svo sé.Tillaganefndarinnar hafi veriðsú að sama regla ætti að gilda um allar auðlindir, náttúruauðlindir sem ekki væru þegar í eigu einstaklinga eða einkaaðila, þannig að nýting á þeim væri í fyrsta lagi gjaldskyld, það skyldi greitt fyrir hana hóflegt gjald og í öðru lagi þá skyldi búa svo um hnúta að úthlutun til aðila til að nýta þessa orku yrði þannig að gætt yrði jafnræðissjónarmiða.

Sú spurning hlýtur að vakna af hverju Alþingi er að skipa nefnd í viðkvæmu deilumáli til að ná fram þjóðarsátt ef ekki á að styðjast við niðurstöður nefndarinnar. Eiríkursegist telja þaðmiður að það skuli ekki mótuð heildarstefnaí málinuþví að þaðmjög mikilvægt og það fyrr en seinna, að um þetta séu settar skýrar reglur sem nái til allra náttúruauðlinda semséuí eigu ríkisins eða þjóðarinnar, þannig að það verði tryggt að menn greiði sanngjarnt endurgjald fyrir nýtingu á þeim auðlindum og það endurgjald dreifist til þjóðarinnar allrar, a.m.k. í eins miklum mæli og hægtauk þess sem að það verði gætt jafnræðissjónarmiða við úthlutun nýtingarleyfa af þessu tagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×