Stórt skref úr bankanum í atvinnumennskuna en sé ekki eftir neinu 4. ágúst 2006 15:15 á æfingu Alfreð Gíslason talar hér til sinna manna með fótbolta undir fæti á æfingu liðsins í síðustu viku. Sverre Jakobsson er lengst til vinstri og hlustar á góð ráð þjálfarans.
Sverre, sem áður gekk undir nafninu Sverrir Björnsson, fór út til Þýskalands 14. júlí og æfingar hófust svo þann 17. undir dyggri handleiðslu Alfreðs Gíslasonar sem tók við liðinu nú í sumar. "Þetta er búið að vera ótrúlega gaman. Þetta eru mikil viðbrigði frá því heima þrátt fyrir að í grunninn sé þetta það sama, nema þá að æfingarnar eru fleiri og erfiðari. Við æfum tvisvar á dag auk þess sem aðrar æfingar eru inn á milli, hlaup og lyftingar. Ég er að venjast því að horfa á þetta sem vinnuna mína en ekki áhugamál, þetta er stórt skref úr bankanum heima og út í atvinnumennskuna en ég sé ekki eftir neinu og mun ekki gera það," sagði Sverre sem líður vel í Gummersbach en hann vann áður hjá Glitni. "Þetta er mjög góður bær og minnir aðeins á Akureyri, þrátt fyrir að vera mun stærri er svipuð stemmning hér. Þá er stutt til Köln þar sem er mikil menning," sagði hinn stóri og stæðilegi jaxl sem er byrjaður að kynnast sínum nýju liðsfélögum. "Liðið virkar mjög vel á mig, allir strákarnir eru fínir en það eru margir nýjir leikmenn hér, átta eða níu og það eru allir að koma sér inn í hlutina og kynnast utan vallar. Það hefur gengið vel og þetta auðveldar mér að aðlagast líka. Það tekur kannski meiri tíma fyrir okkur að slípa liðið saman innan vallar en það kemur væntanlega." Sverre er ánægður með að maðurinn sem valdi hann í landsliðið fyrir viðureignina gegn Svía, sé nú tekinn við Gummersbach. "Það er mjög jákvætt fyrir mig, ég held að það sé betra fyrir mig að hann hafi tekið við þessu strax. Hann nýtur mikillar virðingar hérna og ég finn fyrir mikilli ánægju með Alfreð, þrátt fyrir að hann sé erfiður og með öll þessi hlaup," sagði Sverre og hló dátt. Þýskan var kannski aldrei sterkasta hlið Sverre sem segir að hún muni þó koma á endanum. "Ég er að skoða gömlu menntafræðiglósurnar og get aðeins kraflað mig áfram. Ég hef reyndar ekki mikinn tíma og ég nenni því varla seint á kvöldin þegar maður kemur þreyttur upp á hótel. Ég stefni á að gera þetta af krafti þegar tímabilið er að hefjast og þegar ég hef komið mér betur fyrir og kíki þá kannski á námskeið." Tveir íslendingar leika með Gummersbach, Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson og segir Sverre að það hjálpi mikið til að hafa þá kumpána úti. "Þeir hjálpa mér með allt hérna. Við erum mikið saman og ég fann það strax hvað það hjálpar til að hafa tvo íslendinga og þrjá með Alfreð," sagði Sverre sem bíður spenntur eftir fyrsta leiknum á tímabilinu sem verður þann 26. ágúst. "Mig er óneitanlega farið að hlakka til tímabilsins. Við spiluðum á æfingamóti um síðustu helgi og þar fékk maður smjörþefinn af þýska boltanum, það var stórkostleg upplifun. Við spiluðum til úrslita gegn Grosswaldstadt og mig fór að kitla aðeins, sérstaklega var gaman að mæta Einari Hólmgeirssyni sem reyndar tryggði þeim sigurinn undir lokin, bölvaður," sagði Sverre. "Alfreð var mjög sáttur með minn leik og ég er því fullur sjálfstraust en ég tek þessu með jafnaðargeði. Andstæðingarnir eru handboltamenn eins og ég, eini munurinn er kannski sá að ég er varnarmaður en ekki handboltamaður." Sverre stóð vaktina aðallega í vörninni hjá Fram og undirbýr sig undir svipað hlutverk hjá Gummersbach. "Við Alfreð höfum ekki beint talað um mitt hlutverk en ég skynja að það verði svipað og hjá Fram," sagði Sverre. Gummersbach er í riðli með Fram í Meistaradeild Evrópu en það er kaldhæðni örlaganna fyrir Sverre að mæta sínu gamla liði. "Ég fór að skellihlæja, ég hafði alveg séð þetta fyrir. Áður en ég fór út talaði ég við forráðamenn Fram þar sem við fórum yfir okkar mál þar sem við náðum að grafa allt sem á undan hafði gengið sem var frábært. Við höfðum talað mikið um þetta og manni fannst alltaf eins og þetta ætti að gerast. Ég er líka mjög feginn að komast heim, ég er með bók í láni hjá Guðmundi Guðmundssyni sem ég þarf endilega að skila honum, það linar samviskuna," sagði Sverre Jakobsson, leikmaður Gummersbach, að lokum.
Íþróttir Mest lesið Einkunnir Íslands: Þrjár heitastar í frostinu Fótbolti Vísar slúðrinu til föðurhúsanna Enski boltinn Albert og Mikael Egill í vondum málum á Ítalíu Fótbolti Ísak Bergmann lagði upp gegn Bayern Fótbolti „Við tókum bara þá ákvörðun að fara í Svanavatnið“ Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Körfubolti Palace neitar að sleppa takinu á Liverpool Enski boltinn „Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Fótbolti Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vísar slúðrinu til föðurhúsanna Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Ísak Bergmann lagði upp gegn Bayern „Við tókum bara þá ákvörðun að fara í Svanavatnið“ Albert og Mikael Egill í vondum málum á Ítalíu „Snérist um að sýna okkar ‘identity’ sem lið“ Palace neitar að sleppa takinu á Liverpool „Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Ótrúleg dramatík í Garðabæ og á Sauðárkróki Janus Daði myndaður í heimsókn hjá Barcelona Landsliðsmennirnir öflugir í Evrópu Einkunnir Íslands: Þrjár heitastar í frostinu Viktor Bjarki skoraði og lagði upp í fyrsta byrjunarliðsleiknum Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Pedri gæti verið frá keppni til langs tíma Arteta fyrstur stjóranna á fætur Þorsteinn breytir engu á milli leikja Snjóbræðslukerfi Þróttar kom KSÍ til bjargar Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar Gunnlaugur Árni í níunda sæti á heimslista Jordan gagnrýnir álagsstjórnun í NBA: Þú hefur skyldu til að láta sjá þig Segja spurningar vakna um stöðu Elísabetar Litu á hann sem risaeðlu en sjáið hvað er í tísku núna Formaðurinn hjálpaði til við að moka völlinn Skiptiborð hjá stelpunum í kvöld Var með skattinn á hælunum þegar hann fór í veðmálabraskið Formenn sambandanna hjálpuðu við að moka völlinn Real Madrid mun ekki refsa Vinícius Júnior Fluttu fréttir af snjónum í Reykjavík Sýknaður í alvarlegu ofbeldismáli Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 85-84| Njarðvík fyrstar til að leggja Grindavík af velli Körfubolti